Helsta umræðuefni landsmanna á netmiðlum er væntanleg þjóðaratkvæðisgreiðsla á höfuðdaginn 29. ágúst um ESB. Mörgum liggur mikið niðri fyrir og hógværasta fólk fer hamförum á netinu. Bæði já og nei sinnar eru stórorðir og vanda ekki andstæðingum sínum kveðjurnar. Mikill hiti er í umræðunni.
Það er gleðilegt að þessir andstæðu hópar geta þó sameinast um eitt: Gamalt fólk á ekki að taka þátt í þessari atkvæðisgreiðslu. Menn segja að hér sé um framtíð lands og þjóðar að tefla og „unga fólkið“ eigi að ráða. Margir gamlingjar hafa á netmiðlum tekið undir þennan boðskap. Þeir segjast ætla að spyrja börn sína og barnabörn álits og láta þau ráða hvert atkvæðið fellur. „Ég er hvort sem er á útleið og ESB skiptir mig engu í draumalandinu,“ sagði einn jafnaldri minn nýlega á face-book.
Þetta eru eðlileg sjónarmið. Það liggur í augum uppi að fólk yfir fimmtugt á ekki að hafa kosningarétt. Mörgum er farið að förlast og hafa hreinlega ekki nægilegan skilning á flækjustigi ESB-aðildar. Aðrir vita hreinlega ekki hvað ESB er og halda að þessi skammstöfun þýði „endalaus seinkun bótagreiðslna.“ Sumir telja sig vita allt vegna aldurs og reynslu en vita í raun ekki neitt. Enn aðrir telja að ESB aðild sé af hinu góða fyrir land og þjóð.
Víða í Íslendingasögum og Sturlungu eru frásagnir um hrokafullt gamalt fólk sem fær makleg málagjöld. Hjalti biskupsson í Sturlungu lét fóthöggva nokkra gamla menn sem voru með leiðindaderring þegar hann var í herleiðangri í Dölunum. Griðkonur á Mosfelli gerðu gys að Agli afa mínum Skallagrímssyni þegar hann var orðinn gamall, heyrnarsljór og náttúrulaus. Grettir Ásmundsson lærbeinsbraut gamla konu á skemmtisiglingu við Drangey af því að honum leiddist.
Þessi afdráttarlausa afstaða gagnvart gömlu og þreytandi fólki er til eftirbreytni. Auðvitað eiga þessir vitlausu gamlingjar ekki að hafa kosningarétt eða kjörgengi. Best væri að ganga skrefið til fulls og svipta þetta lið almennum borgararlegum réttindum eins og fjárræði og tjáningarfrelsi. Það gefur auga leið að einungis fólk undir fimmtugu á að fá að greiða atkvæði um þessa hugsanlegu ESB aðild. Öðrum kemur málið ekki við.