Eyjan

Alþingi komið í sumarfrí

Mynd

Alþingi fór í sumarfrí núna á fimmta tímanum.

Á lokadögum þingsins samþykkti það fjölda mikilvægra stjórnarfrumvarpa og í dag var öðrum frumvörpum frestað. Í lok þingfundar þakkaði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, starfsfólki þingsins og þingmönnum fyrir þingstörfin í vetur og sagði samvinnu um afgreiðslu margra mála sýna að þingmenn geti unnið saman að góðum málum.

Þegar hún lauk máli sínu hringdi forseti bjöllu sinni og frestaði fundi. Sumarfríið runnið upp og þingmenn fóru út í sumarið.