fbpx
Mánudagur 04.nóvember 2024
Eyjan

Sigmundur Davíð þvingaður út í búð eftir að ungir Sjálfstæðismenn gerðu grín að honum – „Þetta er það sem ég bý við“

Eyjan
Þriðjudaginn 29. október 2024 16:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigmundur Davíð veitti því eftirtekt að ungir sjálfstæðismenn höfðu hann að háði og spotti fyrir að vera alltaf í sömu jakkafötunum. Hann viðurkennir að hann eigi vissulega bara tvenn eða þrenn sem passa og því var hann rekinn í næstu herrafataverslun enda tók engin mark á yfirlýsingum hans um metnaðarfullt þyngdartap fyrir kjördag. Ónefndur þingmaður Miðflokks hafi þó nýtt tækifærið til að ná höggi á formanninum og lagði til að Sigmundur leitaði heldur í verslun sem hefði örugglega hans stærð. Seglagerðina Ægi. Þingmenn Miðflokks eru sem stendur tveir, þó það standi til bóta samkvæmt nýjust skoðanakönnunum. Því var það líklega Bergþór Ólason sem fór með grínið, nema það hafi verið Sigmundur sjálfur.

Sigmundur skrifar á Facebook:

„Ég sá að einhverjir ungir sjálfstæðismenn gerðu grín að því að ég væri alltaf í sömu jakkafötunum (einhverra hluta vegna er ég þeim hugleikinn).
Ok, ég skal viðurkenna að ég á bara tvenn eða þrenn jakkaföt sem passa eftir að ég bætti á mig (og þau eru eins). En talandi um „umbúðir umfram innihald”!
Óháð því var ég þó rekinn í herrafataverslun (því enginn trúði því að ég næði að missa 20 kíló fyrir kosningar).
Ónefndur þingmaður Miðflokksins spurði hvort ekki hefði verið betra að senda mig bara beint í Seglagerðina Ægi.
Þetta er það sem ég bý við.“

Hann birtir svo mynd af sér í jakkafatamælingu þar sem hann er raunamæddur á svip, mögulega yfir meinfýsnum brandaranum, mögulega yfir því að þurfa að splæsa í jakkaföt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Ábyrgðarleysi og aumingjaskapur Vinstri grænna – óheilindi og aumingjaskapur sjálfstæðismanna?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Ábyrgðarleysi og aumingjaskapur Vinstri grænna – óheilindi og aumingjaskapur sjálfstæðismanna?
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Telur að forsetakosningarnar geti endað með stórsigri

Telur að forsetakosningarnar geti endað með stórsigri
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður: Dagur hefur komið inn í kosningabaráttuna af ákveðinni auðmýkt

Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík suður: Dagur hefur komið inn í kosningabaráttuna af ákveðinni auðmýkt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Baldur segir að áralöng herferð Morgunblaðsins hafi borið árangur – „Skála líklega í sérpöntuðu kampavíni af fögnuði“

Baldur segir að áralöng herferð Morgunblaðsins hafi borið árangur – „Skála líklega í sérpöntuðu kampavíni af fögnuði“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Mistök sósíalista og sjálfstæðismanna gætu skotið líflínu til Vinstri grænna

Orðið á götunni: Mistök sósíalista og sjálfstæðismanna gætu skotið líflínu til Vinstri grænna
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Angela Árnadóttir skrifar: Fjárfestum í kennurum

Angela Árnadóttir skrifar: Fjárfestum í kennurum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón segist ekki vera rasisti – „Ég kippi mér ekki upp við svona bull og merkimiða“

Jón segist ekki vera rasisti – „Ég kippi mér ekki upp við svona bull og merkimiða“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Birgir Ármannsson níunda einnota borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins?

Orðið á götunni: Birgir Ármannsson níunda einnota borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins?