Stjórnendadagur Reykjavíkurborgar var haldinn í áttunda skiptið þann 20. mars. Markmið stjórnendadags er að tengja saman stjórnendur borgarinnar þvert á starfsstöðva sem og að styrkja og efla þekkingu stjórnenda og efla tengsl og samkennd innan hópsins.
„Á stjórnendadegi borgarinnar er boðið upp á markvissa fræðslu skv. áherslum hverju sinni og lagt upp með að efla tengsl milli stjórnenda,“ segir í svari borgarinnar við fyrirspurn Eyjunnar. Þau sem fengu boð um þátttöku í ár voru stjórnendur skipulagseininga hjá borginni, auk aðstoðarstjórnenda (s.s. aðstoðarskólastjóra). Til viðbótar var völdum hópi sérfræðinga boðin þátttaka í samræmi við áherslu dagsins sem í ár var „Þjónusta og stjórnun). Svið borgarinnar gátu svo boðið með þeim sérfræðingum sínum sem koma sérstaklega að þjónustustýringu eða innleiðingu þjónustustefnu. Af þeim 722 einstaklingum sem var boðin þátttaka þáðu 485 boðið en þátttakendur voru af öllum fag- og kjarnasviðum borgarinnar.
Kostnaður við stjórnendadaginn nam tæpum 6 milljónum króna og má þar helst nefna kostnað við leigu á sal í Hörpunni, veitingar í kaffihlé og greiðslur til nokkurra utanaðkomandi aðila sem komu fram. Eins greiddi borgin 80 þúsund krónur fyrir að láta skera út orðið „ÞJÓNUSTA“ úr frauðplasti. Afraksturinn var notaður til að skreyta sviðið.
Í lok dags var haldin móttaka í boði borgarstjóra sem kostaði 736.976 kr. Eins var undirbúningshópum stjórnendadaga 2023 og 2024 boðið í einu lagi út að borða í hádeginu og kostaði sú máltíð 64.750.
„Ekki er kunnugt um annan kostnað sem hafi fallið á Reykjavíkurborg tengt deginum“ segir loks í svari en Eyjan hafði óskað eftir upplýsingum um kostnað sem hafi fallið á borgina á veitinga- eða skemmtistöðum þennan sama dag.
Árið 2023 var kostnaður við stjórnendadag 5,4 m.kr. og fyrir móttöku borgarstjóra í kjölfarið 535.600 kr. Það árið skráðu 445 sig til þátttöku af þeim 717 sem var boðið. Fjöldi stjórnenda hjá borginni hefur vakið athygli en á stjórnendadegi árið 2018 stóð til að mynda stjórnendur saman í stiga Hörpunnar. Stigin svignaði svo undan mannfjöldanum að gler í og undir honum sprakk.