fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Icelandair flýgur til Færeyja

Björn Þorfinnsson
Fimmtudaginn 8. júní 2023 15:57

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Icelandair tilkynnir í dag Færeyjar sem nýjan áfangastað. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku frá 1. maí og út október á næsta ári. Flogið er í morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli og tengist áfangastaðurinn því mjög vel inn í leiðakerfi Icelandair í Keflavík. Flugtími er ein klukkustund og 45 mínútur.

Færeyjar eru í miklum vexti sem ferðamannastaður enda hafa þær upp á margt að bjóða.   Stórbrotin og óspillt náttúra einkennir eyjarnar sem staðsettar eru mitt á milli Íslands og Skotlands. Færeyjar hafa lengi verið vinsæll áfangastaður meðal Íslendinga enda er þessi frændþjóð okkar þekkt fyrir einstaka gestrisni og frábæra matarmenningu.

Icelandair og færeyska flugfélagið Atlantic Airways hafa einnig undirritað viljayfirlýsingu um samstarf enda liggja mikil tækifæri í að bjóða viðskiptavinum félaganna þægilegar tengingar á milli Færeyja og áfangastaða Icelandair í Evrópu og Norður-Ameríku.

„Það er mjög ánægjulegt að kynna flug til Færeyja. Færeyjar eru vaxandi áfangastaður og við finnum fyrir miklum áhuga á flugi þangað hjá viðskiptavinum okkar um allan heim. Tengsl Færeyinga og Íslendinga hafa alltaf verið mikil og okkar von er sú að með aukinni ferðatíðni muni þau tengsl og samvinna styrkjast enn frekar. Í þeim anda munum við nú hefja vinnu við að efla samstarf okkar við Atlantic Airways. Við höfum í gegnum árin átt í góðu samstarfi við félagið en sjáum mikil tækifæri í að efla það enn frekar,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair.

„Hlutverk Atlantic Airways er að tengja Færeyjar umheiminum. Við höfum átt í góðu samstarfi við Icelandair um áratugaskeið og tengt Færeyjar við Ísland. Bandarískir ferðamenn eru vaxandi hópur og mikilvægur fyrir færeyska ferðaþjónustu og þessi viljayfirlýsing greiðir leiðina að því að tengjast betur Íslandi og öflugu leiðakerfi Icelandair til Bandaríkjanna og Evrópu,“ segir Jóhanna á Bergi, forstjóri Atlantic Airways:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun