fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Þorsteinn segir að viðvarandi skekkja sé í hagkerfinu og að ríkisstjórnin vilji ekki ræða kjarna málsins

Eyjan
Fimmtudaginn 1. júní 2023 09:53

Þorsteinn Pálsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það alvarlegasta í stöðunni er sú staðreynd að vextir þurfa að vera þrefalt hærri en í grannlöndunum til að vinna á svipaðri verðbólgu. Þetta vill ríkisstjórnin ekki ræða. Forysta Samfylkingar er einnig hætt að ræða þennan kerfislega vanda. Í þingumræðunni voru talsmenn Viðreisnar þeir einu sem beindu athyglinni að þessu kjarna viðfangsefni efnahagslífs og velferðar í landinu.“ skrifar Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, í pistli á Eyjunni þar sem hann er orðinn reglulegur pistlahöfundur

Viðvarandi skekkja í hagkerfinu

Segir Þorsteinn að þó að deilur um ábyrgðina á verðbólgunni séu ekki gagnslausar þá virki þær þó eins og gerviumræða á sporbaug um kjarna málsins. Þögn ríki að mati Þorsteins um þær skekkjur í þjóðarbúskapnum sem takmarka möguleika stjórnvalda til þess að takast á við undirliggjandi vanda.

„Þessi skekkja er ekki tímabundin meðan verðbólgan gengur yfir. Þetta er viðvarandi skekkja í hagkerfinu. Mismunurinn gagnvart samkeppnislöndunum er alltaf jafn mikill, en ýkist vitaskuld í mikilli verðbólgu. Þessi skekkja veikir viðvarandi samkeppnisstöðu flestra lítilla og meðalstórra fyrirtækja. En hún veldur líka óréttlæti af því að annar hluti atvinnulífsins starfar í mun hagstæðara lánaumhverfi, sem stýrt er af seðlabönkum Evrópu og Bandaríkjanna,“ skrifar Þorsteinn.

Hann segir að stundum séu sársaukafullar efnahagsaðgerðir eins og vaxtahækkanir óumflýjanlega en þegar þær bitni með mismunandi þunga á launafólki og fyrirtækjum verður óréttlætið sjálfstæð uppspretta óróleika á vinnumarkaði.

Háar vaxtagreiðslur skerða svigrúm okkar

„Meðan atvinnulífinu er skipt í tvö hólf ólíkra peningakerfa er borin von að finna flöt á stöðugleikamódeli á vinnumarkaði. Þrefalt hærri vextir en grannlöndin búa við hafa líka leitt til þeirrar þverstæðu að þrátt fyrir hóflega skuldastöðu ríkissjóðs verjum við hærra hlutfalli þjóðarútgjalda í vaxtagreiðslur en skuldugustu þjóðir Evrópu.“ skrifar Þorsteinn.

Að mati Þorsteins er þetta háa hlutfall vaxtagreiðslna ein  helsta ástæðan fyrir því að svigrúm Íslendinga til að styrkja rekstur heilbrigðiskerfisins hefur verið minna en annarra Norðurlanda.

„Vandi velferðarkerfisins er ekki of lágir skattar heldur  of há vaxtaútgjöld. Ríkisstjórnin vill ekki ræða þennan kerfislæga vanda. Forysta Samfylkingar hefur tekið upp stefnu VG frá því í kosningunum 2017 og leggur til víðtækar almennar skattahækkanir. Kannanir sýna þó að yfirgnæfandi meirihluti kjósenda hennar fylgir enn hugmyndum um kerfisbreytingar. Formaður Viðreisnar freistaði þess í þingumræðunum á þriðjudag að beina umræðunni að vali um þessar þrjár megin leiðir: Að viðhalda skekkjunni, leiðrétta hana með sköttum eða fara í kerfisbreytingu. Í stað þrætubókar um ábyrgð á verðbólgu og vöxtum er miklu nær að draga fram rök og mótrök fyrir  vali kjósenda milli þessara þriggja leiða. Stóru átakalínur næstu kosninga hljóta að teiknast upp um þessar þrjár leiðir að svo miklu leyti sem umræðan snýst um kjarna málsins,“ skrifar Þorsteinn og fullyrðir að kerfisbreytingar séu óumflýjanlegar.

Hér er hægt að lesa pistil Þorsteins í heild sinni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun