Upplýsingatæknifyrirtækið Kolibri hlaut á dögunum vottun Great Place To Work® með hæstu einkunn og skipar þar með efsta sæti lista GPTW yfir bestu íslensku vinnustaðina. GPTW er alþjóðleg stofnun um vinnustaðamenningu. Kolibri samanstendur af fjölbreyttum hópi hönnuða, forritara og ráðgjafa sem eiga það sameiginlegt að hafa drífandi áhuga á að búa til framúrskarandi stafrænar lausnir sem leysa úr raunverulegum áskorunum fólks.
Kolibri leggur mikið upp úr heilbrigðum vinnukúltur og sífelldri framþróun. „Þegar fólk nýtur sín mun það gera frábæra hluti. Hjá okkur eru engir stjórnendur og allar ákvarðanir, hvort sem þær snúa að rekstri félagsins eða verkefnum, eru teknar af fólki sem hefur þekkingu og áhuga á að leggja sitt af mörkum. Við trúum á að fólk sé skapandi, traustverðugt og fullt af áhuga á að nýta hæfileika sína til góðs. Við viljum laða að rétta starfsfólkið og vottunin og niðurstöður könnunar GPTW munu án efa hjálpa okkur við það,“ segir Anna Signý Guðbjörnsdóttir, talsmaður Kolibri. Kolibri var stofnað 2007 og hefur frá upphafi vakið athygli fyrir framsækna stjórnun. Launakerfið er t.a.m. opið sem þýðir að allt starfsfólk getur séð laun hvert annars, séð launaþróun og fjárhagsbókhald fyrirtækisins. „Allt starfsfólkið kemur saman einu sinni í viku og talar um líðan sína og tilfinningar, hvort heldur það tengist vinnu eða einkalífi, og lofar að vera til staðar fyrir hvert annað,” segir Anna Signý. Jafnt hlutfall kvenna og karla „Í byrjun árs 2023 náðum við jöfnu kynjahlutfalli í fyrirtækinu en 2020 var hlutfall kvenna í upplýsingatækni 17% í Evrópu og 24% hjá okkur. Við ákváðum að fókusera á þetta og einsettum okkur að gera betur og nýta kraftinn og tækifærin sem jafnvægi felur í sér. Fagleg þekking og hæfni er augljóst mat, en áhrif einstaklingsins á heildarmyndina – þ.e. jafnvægið, breiddina, starfsandann, getuna til að víkka sjóndeildarhringinn og fjölga sjónarmiðum – ráða úrslitum. Aðalmálið er að með þessu móti smíðum við betri stafrænar lausnir og aukum ánægju starfsfólksins.” „Við höfum notað nafnlausar starfsánægjumælingar í þó nokkur ár og því var mjög ánægjulegt að fá það staðfest að Kolibri er 100% Great Place To Work og að þær áherslur sem við höfum sett okkur skila sér í aukinni starfsánægju,” segir Anna Signý. Eitt af því sem við tökum úr könnun GPTW er að starfsfólkið vill gefa meira til samfélagsins. Næsta skref er að nýta lýðræðislegt stjórnkerfið, halda opnar umræður um hvað við sem Kolibri viljum gera næst,” segir Anna Signý