fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Álversbyggingin í Helguvík verður að grænum iðngarði

Eyjan
Miðvikudaginn 1. mars 2023 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýverið var gengið frá kaupum Reykjanesklasans ehf.  á byggingum Norðuráls í Helguvík.  Húsnæðið sem er um 25 þúsund fermetrar að grunnfleti hefur staðið autt um árabil. Ætlunin er að húsnæðið verði um 35 þúsund fermetrar þegar umbreytingu þess er lokið. Reykjanesklasinn fyrirhugar að koma þar upp „Græna iðngarðinum“ sem hýst getur innlend og erlend fyrirtæki sem þurfa rými fyrir sprotastarf, rannsóknar- og tilraunastarfsemi, þróun, framleiðslu og samsetningu á vörum eða aðstöðu fyrir fiskeldi og ræktun, svo eitthvað sé nefnt. Stofnendur Reykjanesklasans eru Keflvíkingurinn Kjartan Eiríksson og Þór Sigfússon. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu til fjölmiðla.

„Með grænum iðngarði skapast tækifæri fyrir fjölda fyrirtækja að nýta sér einstaka aðstöðu og auðlindir Reykjaness. Staðsetning garðsins við alþjóðaflugvöll og höfn skapar líka mikil tækifæri. Við vonum að þessi nýja starfsemi geti einnig eflt enn frekar allt samfélagið í kringum Græna iðngarðinn, aukið fjölbreytni starfa og tækifæra fyrir fólk með ólíka menntun, bakgrunn og þekkingu,“ segir Kjartan Eiríksson en hann var framkvæmdastjóri Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar í mörg ár en félagið var stofnað fljótlega eftir brottför Varnarliðsins.

Verður 35 þúsund fermetrar eftir umbreytingu

Húsnæðið sem um ræðir er 25 þúsund fermetra að stærð að grunnfleti og hefur staðið autt um árabil. Ætlunin sé að húsnæðið verði um 35 þúsund fermetrar þegar umbreytingu þess er lokið.

Fram kemur að græni iðngarðurinn sé staðsettur í nokkurra mínútna fjarlægð frá höfninni í Helguvík og Leifsstöð. Húsnæði Græna iðngarðsins bjóði upp á fjölbreytta möguleika og aðstöðu sem hægt sé að skipta upp í misstórar einingar sem henti hverju verkefni. Enska heiti Græna iðngarðsins verður Iceland Eco-Business Park, en stofnendur Reykjanesklasans eru þeir Kjartan Eiríksson og Þór Sigfússon.

„Grænir iðngarðar eru klasar fyrirtækja sem staðsett eru á sameiginlegu svæði. Markmið garðanna er að styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækjanna í hringrásarhagkerfinu. Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á að koma á fót starfsemi í græna iðngarðinum leitast við að haga starfsemi sinni á þann hátt að minnka úrgang eins og kostur er. Hvers konar úrgangur frá starfsemi fyrirtækjanna er endurnýttur eða nýttur sem auðlind fyrir önnur fyrirtæki í garðinum. Í samstarfi fyrirtækjanna er einnig lagt kapp á að búa starfsfólki aðlaðandi og spennandi umhverfi.

Klasar og iðngarðar eiga margt sameiginlegt en bæði þessi samfélög hafa orðið til í þeim tilgangi að auka verðmætasköpun, samlegðaráhrif og nýsköpun. Græni iðngarðurinn byggir á svipaðri hugmyndafræði og Íslenski sjávarklasinn hefur beitt á undanförnum áratugum við að leiða saman fólk og fyrirtæki tengda nýsköpun. Innan Græna iðngarðsins verður starfræktur hópur sem samanstendur af fulltrúum fyrirtækja í garðinum. Markmið hópsins er að skapa aukin verðmæti með samstarfi fyrirtækjanna tengt nýsköpun og hringrásarmálum.

Græni iðngarðurinn og Auðlindagarðurinn á Reykjanesi hyggjast efla samstarf sín í milli. Auðlindagarðurinn á Reykjanesi hefur þótt í mörgu fyrirmynd um uppbyggingu umhverfisvæns atvinnusvæðis. Auðlindagarðurinn nýtir nálægð við jarðvarmaver HS Orku.

Stuðli að aukinni verðmæta- og atvinnusköpun

Með samstarfi Græna iðngarðsins og Auðlindagarðsins skapast tækifæri til að búa fyrirtækjum í græna iðngarðinum og á öllu svæði Auðlindagarðsins enn sterkari samkeppnisstöðu. Þá á Græni iðngarðurinn einnig í nánu samstarfi við Kadeco sem er Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar.

Með samstarfi við sveitarfélög á svæðinu, Reykjaneshöfn og aðra hagaðila er stefnt að þvi að starfsemi Græna iðngarðsins stuðli að aukinni verðmæta- og atvinnusköpun. Markmiðið er að gera allt svæðið áhugavert fyrir fyrirtæki og frumkvöðla sem vilja að byggja upp umhverfisvæna starfsemi, á svæði þar sem finna má öflug samfélög, hreinar auðlindir og góðar tengingar við útlönd,“ segir í tilkynningunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum

Katrín og kosningastjórinn afsala sér biðlaunum
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi

Segir að Bjarni Benediktsson hafi haft forsetaframbjóðanda fyrir rangri sök í Kastljósi
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Málefnahnútarnir enn óleystir

Þorsteinn Pálsson skrifar: Málefnahnútarnir enn óleystir