fbpx
Þriðjudagur 28.mars 2023
Eyjan

Efling stefnir Ríkissáttasemjara fyrir dóm

Erla Dóra Magnúsdóttir
Fimmtudaginn 2. febrúar 2023 13:41

Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Efling hefur ákveðið að láta Héraðsdóm skera úr um lögmæti miðlunartillögu sáttasemjara. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem var send rétt í þessu.

„Vegna viðbragðsleysis Guðmundar Inga Guðbrandssonar félags- og vinnumarkaðsráðherra við stjórnsýslukæru sem Efling – stéttarfélag lagði fram við ráðherrann þann 30. janúar hefur félagið ákveðið að skjóta kröfu um ógildingu miðlunartillögu til almennra dómstóla.“

Efling segir að þar með verði ríkissáttasemjara stefnt fyrir Héraðsdóm þar sem Efling muni krefjast ógildingar á miðlunartillögu embættisins sem kynnt var þann 26. janúar.

„Efling hefur frá upphafi hafnað lögmæti tillögunnar, sem lögð var fram þvert á ákvæði laga um að ráðgast bera við deiluaðila og er auk þess í einu og öllu samhljóða kröfum Samtaka atvinnulífsins. Öll heildarsamtök launafólks á Íslandi hafa gagnrýnt meðhöndlun ríkissáttasemjara á málinu.“

Stefnan verður lögð fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í dag og óskað verður eftir flýtimeðferð.

„Við höfum sagt frá byrjun að miðlunartillaga ríkissáttasemjara er lögleysa og markleysa. Embættið hefur misnotað valdheimildir sínar til að taka afstöðu með sjónarmiðum annars aðilans í kjaradeilu og reyni að svipta hinn aðilann, sem í þessu tilviki er tekjulægsta verkafólk landsins, sjálfstæðum samningsrétti sínum. Við eigum heimtingu á að dómstólar fjalli um þetta framferði,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttir, formanni Eflingar, í tilkynningu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Samiðn handsalar samning við Orkuveitu Reykjavíkur

Samiðn handsalar samning við Orkuveitu Reykjavíkur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu

Ögmundur sakar íslensk stjórnvöld um misnotkun á hælisleitendakerfinu
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vonlaus málstaður stjórnarmeirihlutans

Björn Jón skrifar: Vonlaus málstaður stjórnarmeirihlutans
Eyjan
Fyrir 1 viku

Björn Leví spyr hvað VG og Framsókn fái í sinn hlut fyrir að leyfa Sjálfstæðisflokknum að selja Íslandsbanka og Isavia?

Björn Leví spyr hvað VG og Framsókn fái í sinn hlut fyrir að leyfa Sjálfstæðisflokknum að selja Íslandsbanka og Isavia?
Eyjan
Fyrir 1 viku

„Fólk á það til að missa lífsviljann þegar það ætlar að láta verða af því að byggja“

„Fólk á það til að missa lífsviljann þegar það ætlar að láta verða af því að byggja“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ragnar Þór endurkjörinn formaður VR

Ragnar Þór endurkjörinn formaður VR