fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Joe & The Juice loka á Leifsstöð – Krafa um áfengissölu og tilbúna rétti samræmist ekki áherslum fyrirtækisins

Eyjan
Föstudaginn 6. janúar 2023 11:13

Birgir Bieltvedt Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joe & The Juice hefur ákveðið að draga sig úr útboði um rekstur veitingastaða á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur  fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu. Báðum sölustöðum Joe & The Juice á vellinum, annars vegar á efri hæð eftir að farið er í gegnum öryggisleitina og hins vegar á neðri hæð við brottfararsal, verður því lokað á næstu mánuðum eftir tæplega átta ára veru í flugstöðinni.

Ástæða ákvörðunarinnar samkvæmt tilkynningunni er sú að Isavia setur skilyrði um að allir þeir veitingastaðir sem verði fyrir valinu í útboðinu þurfi að bjóða bæði upp á áfengi og tilbúna rétti. Joe & The Juice hefur ekki selt áfengi á sínum stöðum og sömuleiðis hefur staðurinn aldrei boðið upp á mat sem útbúinn var mörgum klukkustundum áður. Þvert á móti er það eitt helsta einkenni staðarins að bjóða upp á eins ferskar samlokur og djúsa og mögulegt er, sem útbúnir eru eftir pöntun. Joe & The Juice hugnast einfaldlega ekki að gera þær breytingar á vöruvali sínu sem Isavia setur kröfu um á Keflavíkurflugvelli, þótt það þýði að félagið eigi ekki möguleika á að halda áfram rekstri í flugstöðinni.

Gátu ekki sætt sig við að hverfa frá grunngildum

Haft er eftir Birgi Bieltvedt, eiganda Joe & The Juice, að fyrirtækið hafi verið með samning um rekstur í flugstöðinni til áramóta og vitað af yfirvofandi útboði. „Það kom okkur hins vegar á óvart síðasta  sumar, þegar útboðsgögnin lágu fyrir, hvers konar breytingar ætti að gera á veitingasölu í flugstöðinni. Við ákváðum engu að síður að taka þátt í útboðinu. Í ferlinu varð sífellt ljósara hversu mikil áhersla var lögð á ýmsa þætti sem hefðu þýtt stórfelldar breytingar á „konsepti“ Joe & The Juice, til að mynda krafa um sölu áfengis og ýmissa tilbúinna rétta,“ segir Birgir.

Hann segir að í útboðinu hafi verið að bjóða út rekstur þriggja á þrem staðsetningum á vellinum og að stjórnendur Joe & The Juice hafi lýst því yfir að fyrirtækið værui tilbúið til að vera með þriðja staðinn undir nýju vörumerki þar sem selt yrði áfengi, gos og tilbúnir réttir. Að lokum gátu stjórnendurnir þó ekki sætt sig  við að breyta hinum tveimur stöðunum og hverfa með því frá grunngildum Joe & The Juice um ferskleika.

Engin skortur á tilbúnum réttum og áfengi

„Okkar upplifun er að það sé enginn skortur á stöðum sem bjóða tilbúna rétti og áfengi í flugstöðinni og erfitt að sjá af hverju það megi ekki vera sem mest fjölbreytni í veitingaframboði vallarins. Kannanir sem gerðar hafa verið á meðal ferðalanga sýna að þeir vilja helst sjá vörur gerðar á staðnum, ferska djúsum og hristinga ásamt kaffi og samlokum á flugvellinum. Joe & The Juice uppfyllir að okkar mati vel þessar væntingar flugfarþega og okkur finnst þetta fyrst og fremst mjög leitt, enda hafa staðirnir verið með þeim vinsælustu á flugvellinum undanfarin ár.“

Joe & The Juice rekur áfram níu staði á höfuðborgarsvæðinu og á Selfossi, en sá nýjasti var opnaður í desember og er við Birkimel í Vesturbænum. Stefnt er að opnun fleiri staða á næstunni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt