fbpx
Miðvikudagur 11.desember 2024
Eyjan

Orkan opnar hraðari hraðhleðslustöðvar

Eyjan
Fimmtudaginn 31. ágúst 2023 09:45

Orkan tekur skref í átt að rafmagni. Mynd/Aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Orkan hefur nú opnað hraðari hraðhleðslustöðvar á Birkimel og Vesturlandsvegi. Í fréttatilkynningu kemur fram að a stöðvunum séu sex hleðslustaurar, fimm með öflugum CCS tengjum og einn með bæði CCS tengi og CHAdeMO tengi, og geta því 6 bílar fengið hleðslu á sama tíma. Hleðslustöðin á Birkimel er 600kW og 400kW á Vesturlandsvegi með rafmagni frá orkusalanum Straumlind sem notar eigin hugbúnað, gervigreind og sjálfvirkni til að tryggja viðskiptavinum sínum hagstæðasta verð á rafmagni á Íslandi. Á Orkustöðvunum er hægt að greiða fyrir hleðslu með Orkulykli, greiðslukorti og snertilausum greiðslum en ekki er þörf á sérstöku snjallforriti. Orkan rekur 72 Orkustöðvar um allt land og stefnir á að fjölga hratt hraðhleðslustöðvum á næstu misserum. Næsta hraðhleðslustöð verður opnuð á Orkunni Laugavegi, við Brauð og co., á allra næstu dögum.

„Orkuskipti í samgöngum eru risastórt verkefni og með þessu erum við að taka okkar fyrsta skref í þeirri vegferð. Okkur fannst mikilvægt að koma inn á orkumarkaðinn með krafti og þess vegna urðu hraðhleðslur fyrir valinu á okkar stöðvum. Markmið Orkunnar er ávallt að einfalda líf viðskiptavina á ferðinni og hlökkum við til að sjá hvernig tekið verður í þessa nýjung hjá okkur,“ er haft eftir Auði Daníelsdóttur, forstjóra Orkunnar, í fréttatilkynningunni.

„Straumlind óskar Orkunni innilega til hamingju með opnun fyrstu hraðhleðslustöðvarinnar. Straumlind selur rafmagn til heimila og fyrirtækja um allt land og það er ánægjulegt að sjá Orkuna stíga þetta skref enda eru orkuskipti í samgöngum gríðarlega mikilvægt verkefni,“ segir Símon Einarsson, framkvæmdastjóri Straumlindar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“

Björn saknar Óla Björns – „Það munar misjafnlega mikið um framlag þeirra sem hverfa úr þingsölunum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“

Birgir segir að Þórður Snær sé réttkjörinn: „Þetta á sér ekki fordæmi svo ég viti til“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er

Skiptar skoðanir á hversu stjórntækur Flokkur fólksins er
Eyjan
Fyrir 1 viku

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar

Baldur rýnir í kosningaúrslitin – Einn af fjórflokkunum datt af þingi og Píratar fengu sömu örlög og allir nýir flokkar
Eyjan
Fyrir 1 viku

Hannes segir kosningarnar vera mikinn ósigur vinstri aflanna en líst vel á að Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórnarandstöðu

Hannes segir kosningarnar vera mikinn ósigur vinstri aflanna en líst vel á að Sjálfstæðisflokkurinn verði í stjórnarandstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Gunnar Smári ósáttur við 5% þröskuldinn – Sósíalistar hefðu annars fengið inn tvo þingmenn

Gunnar Smári ósáttur við 5% þröskuldinn – Sósíalistar hefðu annars fengið inn tvo þingmenn