fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Brimborg og e1 í samstarf um hraðhleðslunet fyrir alla rafbílanotendur

Eyjan
Þriðjudaginn 30. maí 2023 15:27

Frá vinstri talið fyrir framan einn af 14 fyrstu Volvo rafmagnsvörubílunum eru Júlíus Freyr Bjarnason framkvæmdastjóri Rafbox sem er uppsetningar og þjónustuaðili hraðhleðslustöðva Brimborgar, Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1 og Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brimborg og e1 hafa hafið samstarf og opnað tvær fyrstu hraðhleðslustöðvar Brimborgar sem eru nú aðgengilegar öllum rafbílanotendum í gegnum e1 appið. Í fréttatilkynningu kemur fram að markmið Brimborg sé að styðja með þessum hætti við íslensk sprotafyrirtæki og hraða orkuskiptunum með því að auðvelda rafbílanotendum að hlaða allar stærðir og gerðir rafbíla. Hraðhleðslunet Brimborgar ásamt e1 appinu þjónar öllum gerðum fólksbíla, sendibíla, vörubíla, og hópferðabíla og opnar aðgang að öllum hraðhleðslustöðvum Brimborgar – í e1 appinu! Þar er hægt að finna, hlaða og greiða í hleðslustöðvar á einum stað.

Rafbílanotendur vilja einfalt aðgengi að hleðslustöðvum og fleiri hleðslumöguleika óháð því hver á eða rekur stöðvarnar. Rafbílanotendur geta einfaldlega sett upp e1 appið og fengið aðgang að öllum hraðhleðslustöðvum sem Brimborg hefur opnað og hyggst opna en einnig að stöðvum annarra rekstraraðila. Orkuskipti í vegasamgöngum er gríðarlegt hagsmunamál fyrir Íslendinga og því er samvinna mikilvæg til að fjölga hleðslustöðvum og einfalda aðgengi að þeim. Nú hafa tvær fyrstu hraðhleðslustöðvar Brimborgar verið opnaðar við Jafnasel 6 í Breiðholti (á stæðinu hjá MAX1 og Vélalandi við hliðina á Krónunni og Sorpu) með alls fjögur tengi. Önnur stöðin er 120kW og hin 60kW. Brimborg mun nota e1 bakendakerfið og appið til að reka, aðgangsstýra og greiðslumiðla öllum sínum hraðhleðslustöðvum en auk fyrrgreindra stöðva mun Brimborg opna í sumar eina stærstu hraðhleðslustöð landsins í Reykjanesbæ sem verður 600kW og getur hlaðið 8 rafbíla af öllum stærðum og gerðum samtímis” er haft eftir Agli Jóhannssyni, forstjóra Brimborgar.

Myndin er af 120 kW stöðinni við Jafnasel 6 í Breiðholti (við hliðina á Krónunni og Sorpu). Aðgangur að stöðinni er virkjaður á einfaldan hátt með e1 appinu og verður frír prufuaðgangur til og með 4. júní.

Með e1 appinu er líf rafbílanotenda einfaldað auk þess sem e1 býður upp á deilihagkerfi þar sem allir eigendur hleðslustöðva geta tengt stöðvar sínar hvar sem er á landinu inn í e1 appið og selt öðrum aðgang að þeim og haft af því tekjur. Aðgengi er tryggt fyrir alla rafbílanotendur í gegnum e1 appið auk þess sem e1 sér um þjónustuaðstoð við notendur og greiðslumiðlun til eigenda hleðslustöðvanna.

„Við erum deilihagkerfi eða markaðstorg fyrir allar gerðir og stærðir hleðslustöðva, hvort sem er hraðhleðslur eða minni stöðvar. Eigendur hleðslustöðva t.d. heimili, húsfélög, fyrirtæki eða rekstraraðilar stærri hleðsluneta, geta með e1 appinu bæði nýtt þær í eigin þágu og/eða deilt þeim með öðrum rafbílanotendum og aukið nýtingu þeirra. e1 appið verður sífellt útbreiddara og gleður það okkur mjög að fá Brimborg og allar þeirra nýju framtíðar hleðslustaðsetningar í e1 appið og geta með því aukið þjónustu við rafbílanotendur. e1 kerfið er opin lausn, auðveld í notkun og hentar öllum sem vilja styðja við orkuskiptin og auka nýtingu og tekjur hleðslustöðva sinna – við bjóðum alla eigendur hleðslustöðva velkomna í viðskipti og gerum stöðvar þeirra sýnilegar í e1 appinu til hagsbóta fyrir þá og rafbílanotendur,“ segir Hafrún Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri e1.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega