fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Helga Hlín og Magnús ný inn í stjórn Rue de Net

Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 28. mars 2023 11:20

Magnús Árnason stjórnarmaður, Aðalsteinn Valdimarsson stjórnarformaður, Helga Hlín Hákonardóttir stjórnarmaður og Alfred B. Þórðarson, framkvæmdastjóri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hugbúnaðarfyrirtækið Rue de Net hefur fengið þau Helgu Hlín Hákonardóttur og Magnús Árnason til að taka sæti í þriggja manna stjórn félagsins við hlið Aðalsteins Valdimarssonar stjórnarformanns.

Rue de Net hefur á undanförnum árum byggt upp yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á innleiðingu og rekstri viðskiptalausna Microsoft í skýjaumhverfinu og er nú þegar með fjölda viðskiptavina sem nýta sér þá tækni. Einnig hefur félagið fjárfest verulega í vöruþróun og státar af heildstæðu framboði íslenskra sérlausna. Það er mat eigenda að allar forsendur til vaxtar séu til staðar og mikilvægt að fá reynslufólk á því sviði inn í stjórn til að raungera þann vöxt.

„Við höfum ávallt einsett okkur að vera í fararbroddi hvað varðar tækninýjungar og höfum á að skipa einvala teymi sérfræðinga með djúpa þekkingu á nýjasta lausnaframboði Microsoft. Til viðbótar við fjárfestingu í þekkingu höfum við einnig fjárfest í nauðsynlegum sérlausnum fyrir íslenska markaðinn. Nú viljum við byggja á allri þessari þekkingu og reynslu og bæta enn frekar í. Við teljum að tækifæri til vaxtar séu mörg og frábært að fá þau Helgu Hlín og Magnús með okkur í lið til að marka þá vegferð,“ segir Aðalsteinn Valdimarsson, stjórnarformaður fyrirtækisins.

Helga Hlín Hákonardóttir er eigandi og ráðgjafi hjá Strategíu. Helga Hlín er héraðsdómslögmaður með próf í verðbréfaviðskiptum og hefur mikla reynslu af starfi á alþjóðlegum fjármálamörkuðum, stjórnarsetu og ráðgjöf til stjórna og eigenda fyrirtækja.

„Ég hef unnið með eigendum og stjórn Rue de Net í sjö ár og er ótrúlega spennt að taka nú til starfa í stjórn fyrirtækisins. Framundan eru endalausar spennandi áskoranir og ævintýri – en umfram allt tækifæri sem við ætlum að nýta til hins ítrasta. Við erum búin að bretta upp ermarnar og erum þegar byrjuð að taka Rue de Net og viðskiptavini þess inn í framtíðina – með okkar landsins besta hugbúnaðarfólki og frábærum eigendum fyrirtækisins sem treysta okkur í stjórninni fyrir mikilvægum verkefnum,“ segir Helga Hlín Hákonardóttir.

Magnús Árnason er eigandi og ráðgjafi hjá Marka Ráðgjöf og býr bæði að yfirgripsmikilli þekkingu og reynslu á sviði hugbúnaðar og markaðsmála. Hann var markaðsstjóri og framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá Nova frá 2016 til 2022. Magnús hefur m.a. setið í stjórnum ÍMARK og Cintamani, verið vörustjóri hjá OZ og vörumerkjastjóri Latabæjar.

„Það er ánægjulegt að koma að félagi með svona mikla sérþekkingu og reynslu eins og Rue de Net hefur innanborðs. Ég upplifi félagið hafa innbyggða breytingarhæfni og heilbrigt áhættuþol sem er forsenda stígandi vaxtar. Tækifærið er mikið í þeirri tæknilegu umbreytingu sem er að eiga sér stað á markaðnum og félagið er tilbúið að vaxa með viðskiptavinum sínum til að hámarka þau verðmæti sem hægt er að sækja í sameiningu. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í þágu Rue de Net og viðskiptavina þess,“ segir Magnús Árnason.

 

Rue de Net sérhæfir sig í Microsoft viðskiptalausnum í skýinu, sem eru í senn áreiðanlegar, öruggar og sveigjanlegar og gögnin eru aðgengileg hvar sem er og hvenær sem er. Fyrirtækið er í fararbroddi hér á landi á þessu sviði, þar starfa í dag 35 sérfræðingar sem sérhæfa sig í öllu sem tengist innleiðingu, rekstri og þjónustu við Microsoft viðskiptalausnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“