Áformuð verkföll Eflingar í ræstingu, öryggisgæslu og á hótelum munu ekki koma til framkvæmda 28. febrúar eins og boðað hafði verið. Mun þetta skýrast af því að Samtökum atvinnulífsins hefur ekki borist tilkynning með verkfallsboðun og því er héðan af ekki hægt að boða verkfallið með lögbundnum sjö sólarhringa fyrirvara.
Þetta kemur fram í erindi sem Samtök atvinnulífsins hafa sent félagsmönnum.
Ofangreint hefur þá ekki áhrif á yfirstandandi verkföll Eflingar.
Efling greindi frá því á mánudag að Eflingarfélagar hefðu samþykkt verkfallsboðanir í öryggisgæslu, hjá ræstingafyrirtækjum og á hótelum með afgerandi meirihluta í öllum tilvikum.
Til stóð að ótímabundnar vinnustöðvanir samkvæmt verkfallsboðun hæfust 12:00 á hádegi þriðjudaginn 28. febrúar en miðað við tilkynningu Samtaka atvinnulífsins eru þau áform í uppnámi.
Fréttablaðið segist í frétt sinni um málið hafa heimildir fyrir því að verkfallsboðun hafi ekki heldur borist embætti ríkissáttasemjara.
Mbl.is greinir frá því að sökum þess að tilkynning hafi ekki borist þurfi aftur að greiða atkvæði um verkfall en í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur segir að tilkynna beri sáttasemjara og þeim sem verkfall beinist aðallega gegn um vinnustöðvun sjö sólarhringum áður en tilætlunin er að hún hefjist.