Efling mun ekki greiða félagsmönnum úr vinnudeilusjóði sínum komi til verkbanns. Þetta kemur fram í tilkynningu á síðu stéttarfélagsins.
„Kjósi atvinnurekandi að beita verkbanni gegn starfsfólki sínu er það alfarið á ábyrgð hans, ekki stéttarfélags.
Efling mun ekki greiða neina styrki úr vinnudeilusjóði til félagsfólks vegna verkbanns, enda er verkbann ekki á ábyrgð félagsins auk þess sem vinnudeilusjóður stendur ekki undir þeim greiðslum.“
Hvetur Efling félagsfólk til að óska eftir afstöðu sinna atvinnurekenda til þess hvort þeir ætli að beita verkbanni. Best sé að óska formlega eftir fundi og biðja um að afstaða atvinnurekanda til verkbanns komi skýrt fram.
„Komi til verkbanns mun Efling kalla saman félagsfólk til víðtækra mótmælaaðgerða gegn þeim atvinnurekendum sem beita því. Félagið biður félagsfólk að fylgjast með skilaboðum frá félaginu um það.“
Í tilkynningu segir einnig:
„Samtök atvinnulífsins hafa boðað atkvæðagreiðslu meðal aðildarfyrirtækja sinna um verkbann. Verkbann er þegar atvinnurekandi sendir starfsfólk sitt heim úr vinnu og neitar að greiða því laun. Verkbann er hugsað til að neyða verkafólk til að sætta sig við verri útkomu í kjarasamningagerð en ella.
Efling vill leysa kjaradeilu við SA við samningaborðið. Samninganefnd Eflingar hefur stundað viðræður við SA í góðri trú og lagt fram málamiðlanir sem eru ásættanlegar fyrir atvinnurekendur.“
Efling bendir á að verkbann sé einhliða þvingunaraðgerð sem atvinnurekandi kjósi að beita í stað þess að leysa málin með samningum við stéttarfélag sísns starfsfólks.