Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er afar þakklát fyrir baráttukveðjurnar sem tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens sendi henni meðan hann var í sófanum hjá Gísla Marteini í Vikunni á RÚV í gærkvöldi.
„Takk kæri Bubbi fyrir að láta þessi góðu stuðningsorð falla í þættinum hjá Gísla Marteini í gærkvöldi,“ skrifar Sólveig Anna og vitnar svo í orð Bubba:
„Að því sögðu þá styð ég baráttu Eflingar heilshugar. Mér finnst það alveg með ólíkindum að við þurfum að vera að fara í verkföll vegna þess að það er fólk sem getur ekki lifað af laununum sínum. Og ef að Sólveig Anna væri í mínu liði og ég væri að fara í baráttu þá myndi ég setja hana fremst í fylkingarbrjóst því ég hugsaði þetta er besti bardagamaður sem að ég hef séð. En ef ég þyrfti svo að semja við andstæðinginn þá myndi ég segja þú kemur ekki inn í herbergið.“