Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir yfir þungum áhyggjum vegna rafmagnsleysisins sem orsakaðist af því að Suðurnesjalína sló út í gær, þann 16. janúar. Þetta kemur fram í ályktun bæjarstjórnarinnar. Þá segir að alvarlegt ástand hafi myndast á öllum Suðurnsejum vegna þessa en rafmagn fór strax af öllu svæðinu í rúmar tvær klukkustundir. Um það bil 30 þúsund manns búa á svæðinu sem um ræðir en síðar fór heitt vatn, bæði neysluvatn og hitaveita af. Síma- og netsamband fór svo einnig af öllu svæðinu.
„Það er með öllu óviðunandi og grafalvarlegt að slíkt skuli geta gerst árið 2023,“ segir í ályktuninni. „Fulltrúi Landsnets upplýsti í fréttum að ef Suðurnesjalína 2 hefði verið komin í gagnið hefði mátt koma í veg fyrir slíkt hrun innviða.
Í ályktuninni skorar bæjarstjórn Reykjanesbæjar á Sveitarfélagið Voga og Landsnet að leysa strax úr ágreiningi um lagnaleiðir Suðurnesjalínu 2 og leiða það mál til lykta sem allra fyrst svo hægt sé að tryggja raforkuöryggi á Suðurnesjum.
„Bæjarstjórn skorar einnig á fyrirtæki sem veita síma- og netþjónustu til að tryggja lengri uppitíma á varaafli en raunin var í gær.“