fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Eyjan

Sólveig Anna sendir yfirlýsingu vegna máls Gabríels – „Þær aðgerðir voru lögmætar“

Eyjan
Miðvikudaginn 4. janúar 2023 14:14

Sólveig Anna Jónsdóttir, mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félagsdómur hefur komist að þeirri niðurstöðu að uppsögn Eflingar á trúnaðarmanni VR, Gabríels Benjamins, hafi verið ólögmæt.

Í dómsorði segir:

„Viðurkennt er að uppsögn stefnda Eflingar á trúnaðarmanni VR A, hjá Eflingu stéttarfélagi þann 13. apríl 2022, var ólögmæt og braut gegn 11. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938.“

Eins var viðurkennt að brotið hafi verið gegn kjarasamningi er Gabríel var meinaður aðgangur að starfsstöð félagsins, starfsaðstöðu trúnaðarmanns og þeim félagsmönnum VR á skrifstofu Eflingar, hverra hagsmuna Gabríel bar að gæta.

Gabríel fagnaði niðurstöðunni á Facebook þar sem hann sagði að með dómi Félagsdóm væri búið að kveða á um að hópuppsögn Eflingar í vor hafi verið dæmd ólögleg.

„Í kvöld fagna ég því að hópuppsagnir sem hafa verið fordæmdar fyrir að vera siðlausar og ónauðsynlegar hafa núna einnig verið dæmdar ólöglegar. Það er í mínum hug staðfesting á réttmæti baráttu okkar trúnaðarmanna og fyrrum starfsfólks gegn valdamisbeitingu og hreinsunum innan eins mikilvægasta stéttarfélags landsins.“

Vegna þessa hefur Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún hafnar túlkun Gabríels á niðurstöðunni.

Sólveig Anna segir að engin stoð sé fyrir þeirri fullyrðingu að dómurinn feli í sér að uppsögn Gabríels eða annarra starfsmanna Eflingar hafi verið ámælisverð, óeðlileg eða þaðan af verra. Þvert á móti hafi Félagsdómur hafnað sérstaklega þeirri kröfu Gabríels að Efling yrði sektað en af því leiðir að mati Sólveigar að Félagsdómur hafi ekki metið brotin alvarleg.

Hér er yfirlýsing Sólveigar í heild sinni:

Yfirlýsing vegna dóms Félagsdóms 3. janúar 2022 í máli nr. 6/2022:

Í tilefni af dómi Félagsdóms í máli VR vegna Tómasar Gabríels Benjamin gegn Alþýðusambandi Íslands f.h. Eflingar – stéttarfélags er rétt að taka eftirfarandi fram:

Umræðan um skipulagsbreytingar Eflingar vorið 2022 hefur að miklu leyti verið í ósamræmi við raunverulegar staðreyndir. Umfjöllun um dóm Félagsdóms hefur því miður verið með sama hætti þar sem því hefur ítrekað verið haldið fram að dómurinn fjalli um ýmis atriði sem eiga sér enga stoð í raun og veru.

Dómurinn fjallar ekki um lögmæti skipulagsbreytinganna eða þeirrar hópuppsagnar sem var nauðsynleg vegna breytinganna. Þær aðgerðir voru lögmætar.

Dómurinn fjallar einungis um stöðu eins manns, trúnaðarmanns VR. Trúnaðarmaðurinn taldi að hann einn hefði átt að vera undanskilinn við skipulagsbreytingu sem náði til allra starfsmanna og skrifstofunnar í heild. Félagsdómur tekur undir það en fjallar þó ekkert um hver staða og kjör trúnaðarmannsins áttu að vera eftir skipulagsbreytingarnar.

Niðurstaða Félagsdóms um að undanskilja hefði átt einn mann við skipulagsbreytinguna byggir á lagatúlkun sem gerir mun ríkari kröfur en Félagsdómur hefur áður gert í fyrri dómum sínum. Auk þess byggir Félagsdómur á öðrum sjónarmiðum en trúnaðarmaðurinn hélt fram í málinu og meginniðurstaða dómsins er í andstöðu við fullyrðingar trúnaðarmannsins um málsatvik.

Því hefur ranglega verið haldið fram að trúnaðarmanninum hafi verið sagt upp vegna starfa sinna. Hið rétta er að uppsagnirnar beindust ekki sérstaklega að trúnaðarmanninum eða öðrum, ekki var um að ræða „hreinsanir“ eða annað slíkt. Fullyrðingar um að dómurinn byggi á slíku eða öðrum annarlegum hvötum eru einfaldlegar rangar.

Engin stoð er fyrir þeim fullyrðingum að dómurinn feli í sér að uppsögn trúnaðarmannsins eða annarra starfsmanna hafi verið ámælisverð, óeðlileg eða þaðan af verra. Þvert á móti hafnaði Félagsdómur sérstaklega þeirri kröfu trúnaðarmannsins að Efling yrði sektað, en af því leiðir að brotin voru ekki metin alvarleg.

Niðurstaða Félagsdóms byggir einungis á lagatúlkun og því mati dómsins að trúnaðarmaðurinn hefði getað sinnt verkefnum á skrifstofunni eftir skipulagsbreytinguna. Í niðurstöðu Félagsdóms og í umfjöllun um dóminn hefur þó verið skautað fram hjá því að Efling hvatti trúnaðarmanninn til þess að sækja um starf að loknum skipulagsbreytingunum. Trúnaðarmaðurinn kaus að sækja ekki um starf að nýju. Það gerðu þó margir aðrir starfsmenn og voru þeir nánast allir endurráðnir.

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Dulbúinn kaupauki: Sérréttindi opinberra starfsmanna 

Dulbúinn kaupauki: Sérréttindi opinberra starfsmanna 
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Brynjar Níelsson: Mistök að leyfa þjóðinni ekki að ákveða hvort hún vildi fara inn í Evrópusambandið – Viðreisn þurfti ekki að verða til

Brynjar Níelsson: Mistök að leyfa þjóðinni ekki að ákveða hvort hún vildi fara inn í Evrópusambandið – Viðreisn þurfti ekki að verða til
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast

Orðið á götunni: Mogginn og Sjálfstæðisflokkurinn engjast
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Óheilindamaðurinn Bjarni Ben

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Óheilindamaðurinn Bjarni Ben