fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Pétur Smári ráðinn til Banana

Eyjan
Miðvikudaginn 28. september 2022 13:04

Pétur Smári Sigurgeirsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pétur Smári Sigurgeirsson hefur verið ráðinn sem sölustjóri á veitingmarkaði hjá Banönum. Pétur mun bera ábyrgð á sölu og vöruþróun á veitingamarkaði og sitja í framkvæmdaráði Banana.

 

Bananar eru stærsti innflutningsaðili á ávöxtum, grænmeti og berjum á Íslandi. Hlutverk fyrirtækisins er að útvega úrval af gæða grænmeti og ávöxtum á sanngjörnu verði og stuðla þar með að bættri lýðheilsu og velferð samfélagsins.​

 

Pétur kemur til Banana frá Myllunni þar sem að hann hefur sinnt ýmsum störfum bæði sem bakari og svo verkstjóri í framleiðsludeild. Síðustu 16 ár hefur Pétur verið sölustjóri og stýrt allri vöruþróun hjá Myllunni ásamt því að koma að framleiðslu og markaðsmálum. Pétur Smári er bakarameistari að mennt og starfaði meðal annars í Sviss og Bandaríkjunum áður en hann hóf störf hjá Myllunni árið 1995. 

 

„Ég er virkilega spenntur fyrir því að ganga til liðs við Banana. Ég hef fylgst með starfsemi félagsins lengi og hlakka til að taka þátt í að styrkja enn frekar þjónustu Banana við veitingamarkaðinn“ segir Pétur.

 

„Það er okkur mikið ánægjuefni að fá Pétur til liðs við Banana. Ráðningin er liður í innleiðingu á nýrri stefnu hjá Bönunum þar sem að við leggjum aukin fókus á vöruúrval, vöruþróun og þjónustu við veitingamarkaðinn ásamt því að halda áfram færa viðskiptavinum gæða vörur á sanngjörnu verði.

Pétur hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á veitingarmarkaði sem að mun svo sannarlega styrkja okkur verulega í vegferðinni fram undan“ segir Jóhanna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Banana.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun