fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Menntaðir Íslendingar lifa sífellt lengur en þeir ómenntuðu – „Það þarf sveigjanleika, kunnáttu og tíma og oft meiri peninga til að borða hollt“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. júlí 2022 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bilið í ævilengd milli menntunarhópa er að aukast hérlendis á þá leið að hinir menntuðu lifa lengur en hinir ómenntuðu. Þetta kemur fram í nýrri grein frá Hjartavernd og samstarfsfólki stofnunarinnar sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.

Greinin ber yfirskriftina „Áhrif menntunar á áhættuþætti og nýgengi æðakölkunarsjúkdóma“ en í henni er sagt frá því hvernig menntunarstaða hjá fólki á miðjum aldri tengist einkennalausri æðakölkun, áhættu þáttum hjarta- og æðasjúkdóma og nýgengi þeirra.  Fólkinu í rannsókninni var fylgt eftir í 10 ár og var tíðni nýrra hjarta- og heilaáfalla hæst meðal minnst menntaðra.

„Þessar niðurstöður eru sérlega áhugaverðar fyrir þær sakir að ekki hefur áður verið sýnt fram á tengslin milli lágs menntunarstigs og umfangs einkennalausrar æðakölkunar í slagæðum. Þessar niðurstöður styðja þá kenningu að lágu menntunarstigi fylgi aukin sjúkdómsbyrði með því að aukin nýmyndun æðakölkunar kemur fram hjá þessum hópi,“ segir í umræðukafla greinarinnar.

Alls eru tíu íslenskir vísindamenn skráðir sem höfundar greinarinnar en einn þeirra er Thor Aspelund, prófessor í líftölfræði við Háskóla Íslands. Thor vekur athygli á greininni í Facebook-færslu þar sem fram kemur að munu í stöðu áhættuþátta milli menntunarstiga sé sláandi – sér í lagi reykingar, þyngdarstuðull, þríglýseríðar og hreyfing í frítíma.

Skýringarmynd sem sýnir stöðu á áhættuþáttum eftir menntun

 

Í færslu Thors veltir hann vöngum yfir þessari stöðu og bendir á að í greininni sé vitnað í gögn Hagstofunnar sem sýna jákvæða þróun í ævilengd þjóðarinnar en að bilið í ævilengd milli menntunarhópa er að aukast.

„Það ætti að vera keppikefli að auka menntun sem víðast. En það er umhugsunarvert að menntun getur líka verið notuð til að flokka fólk í stéttir og til aðgreiningar. Menntavísindafólk hefur verið að verið að vekja athygli á þessu undanfarið,“ skrifar Thor.

Hann bendir á athyglisverða grein Auðar Magndísar Auðardóttur í nýjasta tölublaði Skírnis sem hann segir að veki lesendur til umhugsunar um menntun og stéttskiptingu á Íslandi. Greinin ber yfirskriftina: Aðgreining, tilfinningar og kynjaður veruleiki foreldra í stéttskiptu þjóðfélagi.

Í greininni, segir Thor, er meðal annars fjallað um þá hugmynd að skólakerfið sýnist hlutlaust „þegar það er í raun hannað í kringum ríkjandi valdakerfi þjóðfélagsins.“

Að mati prófessorsins sé ekki annað hægt að taka undir eftirfarandi orð í greininni. „Það er þess vegna nauðsynlegt að vinna gegn því að bilið milli stétta breikki hérlendis. Undanfarna áratugi hefur það bil einmitt breikkað með þeim afleiðingum að harka færist í leikinn þegar kemur að endursköpun stéttaskiptingar og aðgreiningarþörf efri stétta eykst.“

Thor segir að niðurstaða greinar Hjartaverndar í Læknablaðinu sýni ákveðið heilsuforskot sem sumir hópar njóti umfram aðra.

„Kannski má segja forréttindahópar sem hafa meiri umráð yfir sínum tíma og hærri tekjur. Gildir þetta á fleiri sviðum? Er aðgreiningarþörfin svona ríkjandi að forréttindastéttir hafi til dæmis búið til leiðir til hreyfingar í frítíma sem útiloka aðra? Og hvað með neyslu á næringarríkari og hollari mat? Það þarf sveigjanleika, kunnáttu og tíma og oft meiri peninga til að borða hollt. Og erfitt að borða hollt ef fólkið í kringum þig er ekki á sömu línu,“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus