Blinken skýrði frá þessu í gærkvöldi á fréttamannafundi eftir fund með Dmytro Kuleba, utanríkisráðherra Úkraínu, í Washington D.C.
Blinken sagðist hafa sent Lavrov bréf í gær þar sem hann hafi skýrt frá því að hann vildi ekki funda með honum. Hann sagði að það þjónaði engum tilgangi að funda með Lavror þar sem Rússar hafi nú þegar ráðist á Úkraínu.