Ragnheiður Kr. Finnbogadóttir, lögfræðingur, hefur verið ráðin aðstoðarmaður þingflokks Pírata. Hún tekur við starfinu af Stefáni Óla Jónssyni, sagnfræðingi og fyrrum fjölmiðlamanni, sem hefur gegnt starfinu í rúmlega ár. Hann var ráðinn til starfa í byrjun september 2020 eftir að opið umsóknarferli þar sem um 200 manns sóttu um starfið.
Aðspurð um brotthvarf Stefáns Óla og tilefni þess segir Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, að Stefán Óli hafi sjálfur sagt upp störfum í lok síðasta árs. Að öðru leyti ræði þingflokkurinn ekki mál einstakra starfsmanna flokksins.
Slæmur dagur í gær fyrir haters þegar ég hóf störf sem aðstoðarmaður þingflokks @PiratarXP🏴☠️🥰 pic.twitter.com/UmT5UuKpVX
— 🫑Heiða🫑 (@ragnheidur_kr) January 18, 2022