fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Nýr framkvæmdarstjóri Bandalags íslenskra skáta

Eyjan
Föstudaginn 3. september 2021 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helga Þórey Júlíudóttir tók í dag við sem nýr framkvæmdastjóri hjá skátunum og mun hún leiða breytingar á starfsemi Skátamiðstöðvar til að renna styrkari stoðum undir fræðslu, stuðning við dagskrá, miðlun og þjónustu við skátafélögin í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á fjölmiðla.

„Þetta er gríðarlega áhugavert starf og við okkur blasa ýmsir spennandi möguleikar,” er haft eftir Helgu Þóreyju í tilkynningunni.

Þá kemur fram að þjónusta skátamiðstöðvar í Hraunbæ og útilífsmiðstöðvar skáta á Úlfljótsvatni verði efld með samstöðu og teymisvinnu starfsmanna og sjálfboðaliða í fagráðum og stjórn Bandalags íslenkra skáta (BÍS). Leiðarljós fyrir þessa sóknarstemningu er sótt í stefnuna Fyrirmynd til framtíðar, sem skátafélögin samþykktu á Skátaþingi.

Jákvæð þróun hefur átt sér stað í fjáröflunarstarfi Grænna skáta sem nýtur aukins stuðnings frá almenningi og fyrirtækjum, sem vilja að gefa til skátastarfsins. Kristinn Ólafsson fráfarandi framkvæmdastjóri Skátamiðstöðvar verður framkvæmdastjóri Grænna skáta.

Útilífsmiðstöðin á Úlfljótsvatni hefur ekki farið varhluta af því ástandi sem heimfaraldurinn færir með sér. Unnið verður með þeim sjálfboðaliðum sem dvelja til lengri og skemmri tíma, sem og stoðum rennt undir rekstur m.a. annars með gefandi skólabúðum og sumarbúðastarfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun