Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, tók daginn snemma og kaus í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í morgun ásamt eiginkonu sinni, Þóru Margréti Baldvinsdóttur.
„Kjördagur er og hefur alltaf verið mikill hátíðisdagur hjá okkur, “ segir Bjarni. „Við vöknum snemma, klæðum okkur í betri fötin og byrjum daginn á að kjósa. Svo förum við víða að hitta allt þetta frábæra fólk sem hefur unnið með okkur hörðum höndum alla kosningabaráttuna. Mörg góð samtöl, margar kökusneiðar og margir kaffibollar. Loks er það kosningavaka með tilheyrandi eftirvæntingu, bæði fyrir úrslitunum og stóra verkefninu sem tekur við í stjórnarmyndunarviðræðum.“