Flestir ættu að muna eftir því þegar ákall um nýja stjórnarskrá var málað á vegg við atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið fyrir tæpu ári, en síðan þrifið burt tveimur sólarhringum síðar. Þrátt fyrir það hafði sóðalegt veggjakrot fengið að standa á veggnum óáreitt mánuðum og árum saman.
Formaður Stjórnarskrárfélagsins sagði aðgerðina hafa verið lýsandi fyrir afstöðu yfirvalda og að þrifaæðið hafi orðið til þess að sprenging varð í undirskriftum þar sem krafist var nýrrar stjórnarskrár.
Sama ákall var þá málað á annan vegg, aftan við þann fyrri, og hefur það fengið að standa.
Nú um helgina var síðan fyrri veggurinn við ráðuneytið málaður aftur með skilaboðunum: „Við eigum nýja stjórnarskrá!“
Verkið var unnið af listamannateyminu listamannatvíeykinu Ólafi Ólafssyni & Libiu Castro sem fengu íslensku myndlistarverðlaunin í fyrra í samvinnu við Töfrateymið sem er hópur aktivista.
Ákallið verður ekki þvegið burt
Katrín Oddsdóttir, formaður Stjórnarskrárfélagsins, fagnar því að skilaboðin fái að njóta sín á sem flestum stöðum.
„Ákallið um nýju stjórnarskrána mun aldrei verða þvegið úr vitund þjóðarinnar og nú berjumst við fyrir því að fólk setji x við nýju stjórnarskrána með því að kjósa aðeins þá flokka sem standa gegnheilir með nýju stjórnarskránni,“ segir hún.
Að undanförnu hefur staðið yfir herferð þar sem kallað er eftir nýrri stjórnarskrá með graffítíverkum víða um borgina, auk þess sem nælur með blóminu gleym-mér-ei sem minna á stjórnarskrána hafa verið áberandi og bornar af stjórnmálafólk, verkalýðsforingjar og almennum borgurum.
„Baráttan mun aldrei sofna fyrr en niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar 2012 hefur verið virt af Alþingi,“ segir Katrín.
Auðlind á krana og Gleymérei-kokteilar
Samtök kvenna um Nýja stjórnarskrá, Stjórnarskrárfélagið, Töfrateymið og Ungir umhverfissinnar standa í kvöld fyrir tónleikum á Húrra sem breytist þá í Nýju stjórnar-KRÁNA.
„Þar fær líka SÓLIN – Einkunnagjöf Ungra umhverfissinna fyrir Alþingiskosningar- að skína, til að vekja athygli á umhverfismálum í komandi kosningum. Tónleikar, Auðlind á krana, Gleymérei-kokteilar, Sólarbjór, pub-quiz og almennt stuð!
X við nýja stjórnarskrá,“ segir í kynningu á tónleikunum.