fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Þór Saari segir fólki að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn – „Garðarbæjarklíka sem stjórnar flokknum og graðkar fé í vasa vina og ættmenna fær aldrei nóg“

Máni Snær Þorláksson
Laugardaginn 11. september 2021 18:30

Myndin er samsett.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Það eru margvíslegar ástæður fyrir því að almennur kjósandi ætti ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Þótt flokkurinn hafi á sínum tíma verið akkeri borgarastéttarinnar og sem slíkur nauðsynlegur í því pólitíska litrófi sem á að vera til staðar í alvöru lýðræðisríki og hann hafi einnig náð í fylgi langt út fyrir raðir þeirrar stéttar með snjöllum áróðri og taktík sem skipulögð var að Birgi Kjaran heildsala á sínum tíma, þá er hann fullkominn tímaskekkja í dag.“

Svona hefst pistill sem Þór Saari, sem skipar annað sætið á lista Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag. Í pistlinum fer Þór yfir það hvers vegna honum finnst að fólk eigi ekki að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. „Það daður Sjálfstæðisflokksins við almenning sem tryggði honum fylgi langt út fyrir sínar eðlilegu raðir byggðist á aðferðum, svo kölluðum hverfastjórnum eða hverfaráðum, flokkspólitískum hópum til eftirlits með borgurunum sem eiga rætur í skipulagi flokks eins í Þýskalandi á sínum tíma og hafa verið notaðar með góðum árangri æ síðan í alræðisríkjum um allan heim, allt til dagsins í dag,“ segir hann í pistlinum.

„Það fylgi var því aldrei „eðlilegt“ því menn áttu oft atvinnu sína og lífsbjörg undir því að styðja flokkinn. Hinn svo kallaði verkalýðsarmur flokksins var svo notaður í þágu flokksins, það er flokkseigendafélagsins, eins og hægt var, í stað þess að vera í þágu almenns launafólks. Það var óttinn við byltingu sem gerði það að verkum að Sjálfstæðisflokkurinn var með í (með semingi þó) að innleiða ýmsar samfélags úrbætur en um leið og óttinn við kommúnismann hvarf með falli Berlínarmúrsins var hann ekki lengi að snúa við blaðinu.“

„Það gerðist ekki á einni nóttu“

Þór segir að kúvending hafi orðið í Sjálfstæðisflokknum eftir að Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, náði völdum innan flokksins. „Með valdatöku Davíðs Oddsonar í Sjálfstæðisflokknum og klíkunnar í kringum hann, verður kúvending í stefnu flokksins og þótt það gerðist ekki á einni nóttu þá hrintu þeir félagar and-samfélagslegum aðgerðum í framkvæmd yfir tímabil sem best verður lýst sem einhverju mesta samfélagslega hnignunarskeiði landsins, þótt efnahagur sumra, aðallega auðmanna og klíkubræðra, hafi batnað til muna,“ segir hann.

Þá segir Þór að grafið hafi verið skipulega undan heilbrigðiskerfinu og að það hafi leitt til þess að í dag er nauðsynleg þjónusta ekki veitt. Hann segir húsnæðiskerfið sem var við lýði hér á landi hafi verið eyðilagt með niðurlagningu kerfis verkamannabústaða þar sem kerfið skaffaði fólki með lágar tekjur góðar íbúðir til leigu eða eignar. Þór fer svo yfir fleiri hluti sem hann vill meina að Sjálfstæðisflokkurinn hafi gert verri en þar má nefna fiskinn í sjónum, símaþjónustu og húsnæðisverð.

„Helsta lífsbjörg landsbyggðarinnar, fiskurinn í sjónum utan við landsteinana, var fyrst kvótasettur, og svo einkavinavæddur með óhefta framsalinu. Mikilvægir innviðir svo sem símaþjónusta, var einkavinavædd og er nú mest öll í erlendri eigu. Jarðnæði landsins hefur í stórum stíl verið selt úr landi til erlendra auðmanna þannig að íslendingar eiga ekki lengur sjálfir umtalsverðan hluta af „eigin“ landi, sem er fáheyrt í sögu þjóðríkja. „Erlendir fjárfestingasjóðir“ sem enginn veit hver á, en er líklega falið Tortólafé, hafa eignast mikið af íbúðarhúsnæði og halda uppi háu húsnæðisverði og viðskiptalífið almennt starfar orðið að stórum hluta í fákeppnisumhverfi með tilheyrandi okur verðlagningu. Nýlega birt grein um bílatryggingar sem eru 100% dýrari hér á landi heldur en í nágrannalöndunum, er eitt slíkt dæmi.“

„Þetta er arfleifð flokksins“

Þór segir þá að það þurfi varla að minnast á þátt flokksins í efnahagshruninu árið 2008. „Flokkurinn var ekki bara gerandi að því „regluverki“ sem gerði það að verki að Ísland varð gjaldþrota á heimsmælikvarða, heldur hrinti Sjálfstæðisflokkurinn því regluverki í framkvæmd, sem meðal annars gerði það að verki að um 15.000 fjölskyldur misstu allt sitt. Við skulum því ekki tala um Sjálfstæðisflokkinn og tausta efnahagsstjórn í sömu andránni heldur um Sjálfstæðisflokkinn og hættulega efnahagsstjórn sem byggir á braskvæðingu samfélagsins í þágu fárra auðmanna tengdum flokknum,“ segir hann.

„Stofnanir stjórnsýslunnar hafa verið flokksvæddar Sjálfstæðisflokknum og flokkskírteini metin meira en fagþekking við ráðningar og hið mikilvæga skref í réttarúrbótum, Landsréttur, var eyðilagður í fæðingu af dómsmálaráðherra flokksins. Þetta er arfleifð flokksins, markaðsbúskapurinn sem átti að skila svo miklu (og getur gert það við réttar aðstæður) er einhvers konar lélegur brandari, mikilvægustu þarfir fólks svo sem þak yfir höfðuðið hefur verið fullkomlega braskvætt og sjálft dómskerfið hefur verið stórskaðað og er orðið allt að því ónothæft, sem setur stórt spurningamerki við hugmyndina um réttarríkið Ísland.“

Segir það ekki vera góða hugmynd að kjósa Sjálfstæðisflokkinn

Að lokum segir Þór að það alvarlega sé að vegferðin sem Sjálfstæðisflokkurinn er á muni ekki hætta. „Núverandi Garðarbæjarklíka sem stjórnar flokknum og graðkar fé í vasa vina og ættmenna fær aldrei nóg, því græðgi af þessum skala er óseðjandi. Áframhaldandi stjórnarfar með Sjálfstæðisflokkinn við völd mun hafa alvarlegar afleiðingar fyrir landsmenn og fyrir atvinnulífið (smærri fyrirtækin) og skila sér í fullkomlega einkavinavæddu samfélagi þar sem menntun, heilbrigðisþjónusta, vegir og hvaðeina, verður aðeins á færi auðugs fólks. Það er óhjákvæmilegt,“ segir hann.

„Þess vegna verður að gefa þessum flokki frí frá stjórnartaumunum í langan tíma, leyfa honum að sleikja sár sín og vona að hann rísi aftur með siðleg borgaraleg gildi að leiðarljósi í stað klíkuskapar og græðgi. Ágæti kjósandi, hugsaðu málið vel. Ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Það er ekki góð hugmynd.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus