fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Sósíalistaflokkurinn tilkynnir lista: Endurkoma Þórs Saari og meðlimur Öfga í framboði

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 30. júlí 2021 10:04

Mynd/Sósíalistaflokkurinn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sósíalistaflokkurinn hefur gefið út lista sinn í Suðvesturkjördæmi, Kraganum eins og kjördæmið er oft kallað. „Listinn er náttúrlega eins og fólkið í Sósíalistaflokknum, hópur af baráttuglöðu fólki sem vill breyta samfélaginu, gera það betra,“ segir María Pétursdóttir, sem skipar fyrsta sætið á lista Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi, í tilkynningu sem Sósíalistaflokkurinn sendi á fjölmiðla.

Í tilkynningu flokksins kemur fram að það slembivalinn hópur félaga í flokknum hafi raðað á listann fyrir kosningarnar í haust. „Reynslan hefur sýnt að niðurstaða slembivalinna hópa gefur í flestum tilfellum skýrari mynd af vilja grasrótar en kosning eða prófkjör. Þetta sama lag var haft við val flokksins á listum fyrir sveitarstjórnarkosningar 2018 og verður notað við val á lista flokksins fyrir þingkosningarnar í haust og fyrir sveitarstjórnarkosningarnar næsta vor,“ segir í tilkynningunni.

María segir að erindi Sósíalista til fólks í Kraganum sé það sama og til allra landsmanna. „Við viljum draga völdin til fólksins þar sem þau eiga heima og það mun leiða til aukins jöfnuðar og réttlætis. Við viljum tryggja öllum réttinn til mannsæmandi lífs, öruggs húsnæðis og losa fólk undan nagandi afkomukvíða. Við viljum að allir sjáist og heyrist. Það er eina leiðin til að byggja upp gott samfélag, að við eigum það saman. Það er kjarni sósíalismans.“

Í öðru sæti listans er nafn sem aðdáendur stjórnmála á Íslandi ættu að kannast við, Þór Saari, en hann var kosinn á þing fyrir Borgarhreyfinguna árið 2009. „Sósíalistaflokkurinn er flokka líklegastur til að leiða þær nauðsynlegu kerfisbreytingar sem gera þarf á íslensku samfélagi. Flokkurinn er hæfilega róttækur og er skipaður kjarkmiklu fólki sem mun ekki gangast inn á hefðbundin Fjórflokkastjórnmál. Sósíalistar munu ætíð vera með almannahag og hag þeirra verst settu í fyrirrúmi,“ segir Þór um ástæðuna fyrir því að hann er á lista Sósíalistaflokksins.

Sjö efstu á listanum eru þau María Pétursdóttir, Þór Saari, Agnieszka Sokolowska, Luciano Dutra, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, Hörður Svavarsdóttir og Nanna Hlín Halldórsdóttir. Í tilkynningunni er fjallað nánar um þessa sjö frambjóðendur og þeirra reynslu.

„Í fyrsta sæti er María Pétursdóttir, myndlistamaður, öryrki og aðgerðarsinni, sem hefur starfað innan Sósíalistaflokksins síðustu fjögur árin sem formaður Málefnastjórnar. Auk listtengdra starfa hafði María umsjón með þáttunum Öryrkjaráðinu á Samstöðinni á síðasta ári en hún starfar einnig að málefnastarfi hjá ÖBÍ þar sem hún er aðalfulltrúi MS félagsins innan bandalagsins.

Í öðru sæti er Þór Saari hagfræðingur og fyrrum þingmaður Borgarahreyfingarinnar. Eftir þingsetu 2013 hefur Þór starfað fyrir OECD, átt sæti í bankaráði Seðlabanka Íslands, rekið ferðaþjónustu, verið atvinnulaus og lokið diplómanámi í þýðingum frá Háskóla Íslands. Þór var í trúnaðarmannaráði Sjómannafélags Reykjavíkur um árabil, trúnaðarmaður SÍNE, talsmaður Amnesty International fyrir afnámi dauðarefsinga í Suður-Karólínufylki á námsárum sínum þar og gjaldkeri Breiðavíkursamtakanna og hefur tekið þátt í fjölmörgu öðru félagsstarfi.

Í þriðja sæti er Agnieszka Sokolowska bókavörður og túlkur af pólskum uppruna sem flutti til Íslands fyrir fjórtán árum. Síðustu árin hefur hún tekið virkan þátt í verkefnum tengdum fjölmenningu, var nýlega í ráðgjafahópsi í málefnum innflytjenda á vegum Alþýðusambands Íslands. Innan Sósíalistaflokksins hefur hún lagt sérstaka áherslu á ofangreint málefni auk þess að gera Íslendinga af erlendum uppruna sýnilega á pólitíska sviðinu.

Í fjórða sæti er Luciano Dutra löggiltur skjalaþýðandi, bókmenntaþýðandi og grafískur hönnuður. Luciano er fæddur og uppalin í Brasilíu en flutti til Íslands 29 ára gamall til að læra íslensku sem annað mál við HÍ. Hann stendur nú frammi fyrir stærsta verkefni lífs síns: að hafa stofnað fjölskyldu með sambýliskonu minni Francescu Cricelli, en þau eiga von á barn eftir fáeinar vikur.

Í fimmta sæti er Ester Bíbí Ásgeirsdóttir er tónlistamaður, hljóðmaður í kvikmyndagerð og verkefnastjóri á Kvikmyndasafni Íslands, en einnig sósíalisti inn að beini. Ester Bíbí styður heilshugar að raddir sósíalista heyrist á Alþingi því þær vantar þar sárlega. Hún styður einnig lögfestingu nýju stjórnarskrárinnar, einkum náttúruauðlindaákvæðið. Við erum rík þjóð og eigum að geta staðið undir öllum nauðsynlegum grunnkerfum mun betur en við nú gerum, segir Bíbí: Við eigum að búa við lýðræði ekki auðræði!

Í sjötta sæti er Hörður Svavarsson, leikskólastjóri er fjölskyldumaður sem býr í Hafnarfirði. Hörður stýrir leikskóla í Kópavogi. Hörður hefur látið sig réttindi barna varða, hann var formaður í félaginu Íslenskri ættleiðingu og vinnur nú að rannsókn á rými barna í leikskólum. Hann hefur verið félagi í Sósíalistaflokknum frá því hann var stofnaður.

Í sjöunda sæti er Nanna Hlín Halldórsdóttir, nýdoktor í heimspeki , sem rannsakar m.a. femínískar og marxískar kenningar. Hún hefur tekið þátt í grasrótarstarfi og aktívisma í kringum femínisma, stöðu hælisleitenda, umhverfisvernd og launakjör ungs vísindafólks og nýrrannsakenda. Nú síðast hefur hún tekið þátt í vitundarvaknngu á stöðu langveikra og sjúkdómnum ME/síþreytu en hún lifir sjálf með sjúkdómnum.“

Hér fyrir neðan má sjá lista Sósíalistaflokks Íslands í Suðvesturkjördæmi í heild sinni:

María Pétursdóttir, myndlistakona/öryrki
Þór Saari, hagfræðingur
Agnieszka Sokolowska, bókavörður
Luciano Dutra, þýðandi
Ester Bíbí Ásgeirsdóttir, tónlistarmaður og kvikmyndagerðarkona
Hörður Svavarsson, leikskólastjóri
Nanna Hlín Halldórsdóttir, nýdoktor
Sæþór Benjamín Randalsson, matráður
Ingibjörg Ýr Jóhannsdóttir, rannsóknarlögreglumaður og stjórnsýslufræðingur
Tómas Ponzi, garðyrkjubóndi
Sara Stef. Hildardóttir, upplýsingafræðingur
Agni Freyr Arnarson Kuzminov, námsmaður
Zuzanna Elvira Korpak, námsmaður
Sigurður H. Einarsson, vélvirki
Silja Rún Högnadóttir, myndlistarnemi
Alexey Matveev, skólaliði
Elísabet Freyja Úlfarsdóttir, námsmaður
Arnlaugur Samúel Arnþórsson, garðyrkjumaður
Kolbrún Valvesdóttir, starfsmaður i heimaþjónustu
Baldvin Björgvinsson, framhaldsskólakennari
Elsa Björk Harðardóttir, grunnskólakennari og öryrki
Jón Hallur Haraldsson, forritari
Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir, leikskólakennari
Gísli Pálsson, mannfræðiprófessor
Erling Smith, tæknifræðingur og öryrki
Sylviane Lecoultre, iðjuþjálfi

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðbergur býður sig fram til forseta – Mun minnka við sig ef hann flytur til Bessastaða

Guðbergur býður sig fram til forseta – Mun minnka við sig ef hann flytur til Bessastaða