Daði Már Kristófersson, varaformaður Viðreisnar og prófessor í auðlindahagfræði við Háskóla Íslands tjáði sig um sjávarútvegsmál í þættinum Dagmál sem er á dagskrá Morgunblaðsins. Hann sagði að þær kerfisbreytingar sem hann vilji sjá myndu skila svipuðum tekjum í ríkissjóð og í kerfinu sem nú er við líði. Viðreisn berst nú fyrir svokallaðri samningaleið, en Daði hefur sagt að markmið hennar sé að verja útgerðina fyrir pólitískri óvissu.
Í þættinum segir hann til að mynda að skattar valdi alltaf skaða. Hann segir:
„Allir skattar valda einhverskonar skaða og umfangið af þeim skaða er háð umfangi skattlagningarinnar og það er mjög mikilvægt að við séum örugglega réttum megin þar. Ég vil benda á að sambærileg skattlagning auðlindagreina í nágrannalöndunum er iðulega ekki meiri en þetta með beinni skattlagningu.“
Ekki eru allir sammála honum í þessum málum en Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, og Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokksins, hafa gagnrýnt málflutning Daða.
Í færslu sem birtist á Facebook-síðu Jóhanns segir hann skoðun Samfylkingarinnar á málinu greinilega vera allt aðra en Viðreisnar. Hann hefur litla trú á því að hægt sé að tryggja sátt um sjávarútveginn, þar sem það henti ekki stórútgerðarfyrirtækjum og „stjórnmálaarm þeirra“.
„Athyglisverð frétt. Viðreisn nálgast greinilega sjávarútvegsmálin með allt öðrum hætti heldur en við í Samfylkingunni. Mikilvægt að fá þetta fram með svona skýrum hætti.
Markmið okkar jafnaðarmanna er að tryggja virka þjóðareign, þar sem auðlindarentan af sjálfbærri og hagkvæmri nýtingu fiskistofna skili sér í miklu ríkara mæli en nú er til réttmæts eiganda auðlindarinnar, þjóðarinnar. Útboð á aflaheimildum getur verið sanngjörn og gagnsæ leið að þessu markmiði en ekki markmið í sjálfu sér.
Auðvitað væri gott ef tækist að „tryggja sátt um sjávarútveginn“ – en ég hef enga trú á að eigendur stórútgerðarfyrirtækja og stjórnmálaarmur þeirra sættist nokkurn tímann á þær breytingar sem þurfa að verða til að það ríki sátt um sjávarútveginn meðal landsmanna. Stríðsrekstur LÍÚ, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins gegn hóflegum veiðigjöldum og þjóðareignarákvæði í stjórnarskrá segir allt sem segja þarf.“
Gunnar segir frétt Morgunblaðsins um málið vera það fyndnasta á Internetinu í dag, og í raun sé um stórfrétt að ræða. Það kemur fram í færslu sem hann birtir í Facebook-hóp Sósíalistaflokksins. Hann lítur svo á að Viðreisn sé ekki að leggja til neinar breytingar á kvótakerfinu, heldur leggi flokkurinn til kerfisvernd fyrir útgerðaraðilinn.
„Það fyndnasta á Internetinu í dag. Samkvæmt þessu er Viðreisn ekki að leggja til neinar breytingar á kvótakerfinu, akkúrat engar. Verðið sem varaformaðurinn vill leigja kvótann á verður nákvæmlega það sama og veiðigjöldin eru í dag. Þetta er í raun stórfrétt. Hinar boðuðu kerfisbreytingar Viðreisnar eru kerfisvernd fyrir útgerðaraðilinn.“