fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Oddný segir að þetta sé stórfrétt – „Stefna ríkisstjórnarinnar komin fyrir næsta kjörtímabil“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 31. maí 2021 18:00

Oddný G. Harðardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Síðar í dag, mánudaginn 31. maí 2021, munu stjórnarflokkarnir væntanlega samþykkja fjármálaáætlun, til að framkvæma stefnu þeirra til næstu fimm ára. Það er stórfrétt!“

Svona hefst pistill sem Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd Alþingis, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag. „Þá er stefna ríkisstjórnarinnar komin fyrir næsta kjörtímabil og enginn ætti þá að velkjast í vafa um hver hún verður ef sama ríkisstjórn verður við völd eftir kosningarnar í september.“

„Lítill metnaður“

Oddný segir að þingflokkur Samfylkingarinnar telji að áætlanir ríkisstjórnarinnar í grundvallaratriðum marki ranga leið upp úr efnahagslægðinni. „Í áætluninni er ekkert brugðist við vaxandi ójöfnuði eða stutt við hópana sem samkvæmt nýlegri könnun BSRB og ASÍ líða efnalegan skort. Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir að bætur almannatrygginga eða atvinnuleysistrygginga, vaxtabætur, húsnæðisbætur, barnabætur eða fæðingarorlofsgreiðslur, hækki til samræmis við laun,“ segir Oddný í pistlinum.

„Það er lítill metnaður lagður í að bæta heilbrigðiskerfið eða mæta íbúum á þeirra landssvæða sem hafa orðið verst úti í heimsfaraldrinum. Með stefnu sinni er ríkisstjórnin að taka pólitíska ákvörðun um að auka ójöfnuð í landinu.“

Þá segir Oddný að ríkisstjórnin leggji ofuráherslu á að miða við ákveðið skuldahlutfall. Það sé gert með tilheyrandi niðurskurði á ríkisútgjöldum strax eftir eitt og hálft ár. Oddný segir að þá sé því spáð að atvinnuleysi verði 6-7% og að efnahagsþrengingar verði ekki yfirstaðnar. „Ekkert ríki sem við viljum bera okkur saman við fer gömlu niðurskurðarleiðina líkt og íslenska ríkisstjórnin ætlar að fara fái hún til þess brautargengi.“

Leggur fram tillögur að breytingum

Oddný segir að lokum að þörf sé á breytingum. „Þingflokkur Samfylkingarinnar leggur til breytingar á fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2022-2026. Tillögurnar miða allar að því að fjölga störfum, auka græna verðmætasköpun, bæta heilsu og öryggi fólksins í landinu og bæta kjör barnafólks og þeirra hópa sem verst eru settir í samfélaginu með réttlátari tekjuöflun og jöfnuð að leiðarljósi,“ segir hún og birtir svo helstu breytingartillögurnar.

Breytingartillögurnar sem Oddný birtir má sjá hér fyrir neðan:

Fjölskyldustuðningur. Barnabætur skerðist ekki fyrr en við 600.000 kr. mánaðarlaun. Nú hefjast skerðingar við 351.000 kr. á mánuði og fólk með meðallaun fær engar barnabætur. Óskertar barnabætur yrðu þá um 31.000 kr. á mánuði með einu barni undir 7 ára hjá sambúðarfólki en 44.000 kr. til einstæðra foreldra. Ef börnin eru tvö og annað undir 7 ára yrði greiðslan 55.000 kr. á mánuði hjá sambúðarfólki en 78.000 kr. hjá einstæðum foreldrum.

Sanngjarnari lífeyrir. Elli- og örorkulífeyrir hækki til samræmis við hækkun lægstu launa og að frítekjumark vegna greiðslna frá lífeyrissjóðum hækki í skrefum upp í 100.000 kr á mánuði úr 25.000 kr. Frítekjumark vegna atvinnutekna bæði öryrkja og ellilífeyrisþega verði hækkað að lágmarkstekjutryggingu hverju sinni.

Átak í loftslagsmálum. 5 milljarða aukningu á ári til loftslagsmála til að flýta orkuskiptum, fjármagna grænan fjárfestingarsjóð, auka stuðning við landsbyggðarstrætó, styrkja hringrásarhagkerfið, græna matvælaframleiðslu, gera breytingar á styrkjaumhverfi landbúnaðarins til að styðja betur við grænmetisframleiðslu og stuðning við að gera íslenska stjórnsýslu græna.

Biðlistana burt. Átak til að vinna á biðlistum sem hafa vaxið umtalsvert vegna COVID. Annars vegar vegna skurðaðgerða og hins vegar vegna biðlista eftir geðheilbrigðisþjónustu. Alls bíða 3.625 einstaklingar eftir skurðaðgerð og 1.095 einstaklingar bíða eftir geðheilbrigðisþjónustu hjá LSH og 131 barn bíður eftir þjónustu á BUGL.

Samfylkingin leggur fram ýmsar aðrar breytingartillögur og nefndarálit við fjármálaáætlun. Þær snúa að byggingu 3000 íbúða í almenna íbúðarkerfinu, hækkun húsnæðisbóta, framlög til heilbrigðisstofnana á vaxtarsvæðum hækkuð ásamt því að brugðist verði við undirmönnun og álagi hjá lögreglunni. Einnig hækkun framlaga til nýsköpunar og þróunar og skatteftirlits og samkeppniseftirlits.

Fjármögnun. Tvöfalt hlutverk skattkerfisins verði eflt til að afla tekna í ríkissjóð og jafna stöðu fólks í samfélaginu. Stærri og réttlátur hluti arðsins af auðlindum þjóðarinnar renni í ríkissjóð. Við leggjum til að fjármagnstekjuskattur verði hækkaður til samræmis við það sem gerist í hinum norrænu ríkjunum og hann verði þrepaskiptur. Við leggjum einnig til stóreignaskatt og græna skatta. Betri skattinnheimta fæst með skilvirkara eftirliti og skattrannsóknum.

Störf og hagvöxtur. Sjávarútvegur og ferðaþjónusta gefa útflutningstekjur sem byggja á takmörkuðum auðlindum, náttúru Íslands og gjöfulum fiskimiðum. Við hlið þeirra greina þarf að byggja undir atvinnugreinar sem skapa verðmæti með hugviti fólks. Því ættu stjórnvöld að kalla að borðinu verkalýðsfélög og samtök atvinnurekenda til að vinna saman að nauðsynlegum breytingum á íslensku atvinnulífi. Stefnumótunin sem stjórnvöld verða að ráðast í til að stuðla að fleiri góðum störfum og hagvexti lýtur að atvinnustefnu, menntastefnu og skattastefnu. Stjórnvöld verða að sýna fyrirhyggju, verja hag almennings og læra af mistökum fortíðar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun