Jóhann Páll Jóhannsson, þingframbjóðandi Samfylkingarinnar, birti í dag pistil á vísir.is þar sem hann dregur nýja auglýsingaherferð Sjálfstæðisflokksins í efa og lætur flokkinn heyra það í leiðinni. Á samfélagsmiðlum hefur auglýsing frá Sjálfstæðisflokknum birst fólki með yfirskriftinni „Okkar stefna snýst um að veðja á einstaklinginn,“ en Jóhann er alls ekki sammála því.
„Hvaða einstaklingur er það sem Sjálfstæðisflokkurinn veðjar á? Er það örorkulífeyrisþeginn sem reiðir sig á grunnbætur langt undir lágmarkslaunum og er refsað með himinháum jaðarsköttum í formi tekjutengdra skerðinga þegar hann stígur inn á vinnumarkaðinn? Er það lágtekjufólkið hvers skattbyrði hefur iðulega þyngst þegar flokkurinn fer með lyklavöldin í fjármálaráðuneytinu?“ segir Jóhann og telur upp fleiri hópa sem hann segir kerfið ekki vinna með, svo sem námsmenn og fólk sem missti vinnuna vegna Covid-19.
Hann telur þessa hópa alls ekki vera þeir sem Sjálfstæðisflokkurinn veðjar á heldur séu það „forstjórar á ofurlaunum“ og eigandar stórútgerðanna.
„Forréttindaklíkurnar á Íslandi veðja á Sjálfstæðisflokkinn. Að flokkurinn verði áfram við völd og haldi áfram að verja hagsmuni þeirra með kjafti og klóm. Við hin skulum veðja hvert á annað og samfélagið allt, hjálpast að við að reisa Ísland upp úr kreppunni og vinna markvisst gegn ójafnaðaráhrifum hennar, efla sameiginlegu kerfin okkar jafnvel þótt það kalli á að þyngri byrðar verði lagðar á þá ríkustu og tekjuhæstu, vinna gegn viðvarandi undirmönnun í almannaþjónustu, styðja og valdefla þá sem missa vinnuna og skapa fjölbreytt atvinnutækifæri um allt land. Um þessi grundvallaratriði snúast kosningarnar í haust,“ segir Jóhann.
Hann endar pistilinn á því að segja að orðið „veðja“ sé svo lítið lýsandi fyrir grunnstef hugmyndafræði flokksins.
„Reyndar leggur óþef af þessu veðmálsmyndmáli. Sá sem „veðjar“ á einhvern væntir þess að hann standi uppi sem sigurvegari í keppni, vinni eða valti yfir einhverja aðra.“