„Jæja, þá liggur það ljóst fyrir að ég mun ekki skipa sæti á lista Samfylkingarinnar hér í Suðurkjördæminu góða,“ segir Páll Valur Björnsson, varaþingmaður Samfylkingarinnar, í nýjum pistli. Þar tilkynnir Páll Valur, sem er búsettur í Grindavík til langs tíma, að honum hafi verið hafnað af uppstillingarnefnd flokksins.
Páll Valur er afar ósáttur við þá ákvörðun Samfylkingarinnar að hverfa frá prófkjörum og stilla upp á lista:
„Það verður að segjast eins og er að þessi aðferð Samfylkingarinnar við að raða upp á lista er eiginlega alveg glötuð, ég hef reynt að verja þetta þar sem ákvörðun hvar tekin á landsfundi þar sem meirihluti samþykkti þessa leið. En það segir sig sjálft að þessi leið er eins ósanngjörn og ólýðræðisleg eins og frekast má vera. Samfylkingin hélt glæsilegan rafrænan landsfund á haustdögum þar sem að hátt í 1000 meðlimir flokksins tóku þátt og allar kosningar sem voru rafrænar gengu snurðulaust fyrir sig. Rafrænar kosningar eru framtíðin og Samfylkingin hefði getað og átt að bjóða félögum sínum upp á framboðsfundi frambjóðenda á netinu þar sem hver og einn hefði getað kynnt sig og áherslur sínar og í kjölfarið hefði mátt hafa rafræna kosningu þar sem úrslit og listi myndi liggja fyrir valinn af fólkinu í flokknum.“
https://www.facebook.com/pall.v.bjornsson/posts/10220058633275711