Kári Guðmundsson, veitingamaður í Grindavík og félagsmaður í Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur, rifjar upp hvernig Sjómannastofan Vör í Grindavík var gerð ódauðleg í kvikmyndinni Með allt á hreinu. Í grein í Morgunblaðinu í dag heldur Kári því fram að þessi staður sé nú orðinn vettvangur spillingar.
„Ég rak upp stór augu 12 ára þegar Stuðmenn völsuðu inn á Sjómannsstofuna Vör í Grindavík í kvikmyndinni Með allt á hreinu og borðuðu hamborgara og franskar með hellingi af sósu, vá, langbesta sjoppan og hún í Grindavík. Lengi vel var Sjómannsstofan Vör eini staðurinn í Grindavík þar sem hægt var að setjast niður og kaupa sér mat. Nú er tíminn allt annar og hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan,“ skrifar Kári.
Tilefnið er það að „besti vinur“ formanns Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, að sögn Kára, fékk að leigja staðinn undir veitingasölu, þrátt fyrir áhuga margra annarra, og á vafasömum forsendum, að mati Kári:
„Nú eru komnir nýir rekstraraðilar á Sjómannsstofunni Vör við Hafnargötu. Er það ekki bara gott mál? Húsið hefur fengið töluverða yfirhalningu enda framkvæmdir löngu tímabærar að sögn Einars Hannesar Harðarsonar, formanns Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur, á vef Grindavíkur, en félagið á húsið og leigir út reksturinn.
Það sem vekur athygli og jafnvel furðu er að það er besti vinur formannsins sem fékk að leigja staðinn án þess að aðrir fengju tækifæri á að leggja inn tilboð. Engin leið er betri en opið útboð til að tryggja hagsmuni Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur til að fá sem mest fyrir sína eign. Þess í stað er staðurinn leigður út langt undir markaðsvirði og með 15 til 20 milljóna króna meðgjöf frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur til leigutaka, í formi yfirhalningar á löngu tímabærum framkvæmdum að sögn formannsins. Vert er að athuga það að framkvæmdir felast ekki í endurbótum á þaki eða veggjum fasteignarinnar heldur uppfærslu á búnaði og tækjum fyrir veitingarekstur á samkeppnismarkaði.“
Kári segir það fela í sér samkeppnisskekkju fyrir rekstraraðila veitingahúsa í Grindavík þegar einn aðili leigi húsnæði og tækjabúnað fyrir lágmarksfjárhæð. Telur hann samninginn vera með þeim hætti að Sjómanna- og vélstjórafélagið hafi ekki hag af þessu samkomulagi þar sem samið hafi verið til langs tíma undir markaðsvirði. Hann spyr hvort eðlilegt sé að samkeppni í veitingarekstri sé fjármögnuð af Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur. Kári er ómyrkur í máli og kallar þetta samkomulag ráðabrugg:
„Staðurinn er nú stórglæsilegur og opnaður aftur eftir endurbæturnar með því að bjóða upp á hádegisverðarhlaðborð og fleira í samkeppni við aðra veitingamenn í Grindavík sem þurfa að standa skil á öllu sínu upp á tíu og fjármagna sínar framkvæmdir sjálfir. Er eðlilegt að ný og endurbætt samkeppni í veitingarekstri sé fjármögnuð af Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur? Vita félagsmenn af ráðahagnum? Vita félagsmenn að ráðabrugg sem þetta er í engu samræmi við tilgang félagsins í 2. gr. laga þess? Gera félagsmenn sér grein fyrir því að það hefði örugglega fengist hærra verð fyrir fjárfestinguna með því að bjóða fleirum en besta vini formannsins einum að kjötkötlunum?“