fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Guðbrandur ósáttur með Svandísi – „Því miður hefur ekki verið bætt úr þessu“

Máni Snær Þorláksson
Þriðjudaginn 23. febrúar 2021 11:20

Guðbrandur og Svandís - Mynd/Samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ráðherra segir NEI“ er yfirskriftin á pistli sem Guðbrandur Einarsson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar og oddviti Beinnar leiðar, skrifar en pistillinn birtist á Vísi.is. Pistillinn fjallar um heilbrigðiskerfið og er ráðherrann sem hann talar um Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra.

Í upphafi pistilsins segir Guðmundur að Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hafi glímt við verulegan vanda í áratugi. Þessi vandi er margþættur: mönnunarvandi, húsnæðisvandi, fjármögnunarvandi en einnig samskiptavandi sem oft hefur blossað upp og þá sett stofnunina í mjög erfiða stöðu,“ segir hann.

„Því miður hefur ekki verið bætt úr þessu þrátt fyrir hróp úr samfélaginu, ályktanir bæjarstjórna á svæðinu eða framlagningu skýrslna sem staðfesta að verulega hefur hallað á svæðið þegar kemur að útdeilingu fjármagns til svæðisins þar með talið til heilbrigðisstofnanna.“

„Þarna gætir tvískinnungs“

Guðbrandur segir að heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu hafi glímt við svipaðan vanda á sínum tíma en að breytingar hafi verið gerðar á rekstrarfyrirkomulagi þeirra árið 2017. „Þá var fjármögnun kerfisins breytt og þremur einkareknum heilsugæslustöðvum veitt heimild til rekstrar. Þessar breytingar hafa gert það að verkum að mönnunarvandi er lítill ef nokkur og staða heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins önnur og betri en staða heilsugæslu á landsbyggð,“ segir hann.

„Um síðustu áramót tóku síðan í gildi samskonar fjármögnunarreglur heilsugæslu á landsbyggð og hafa gilt fyrir höfðuborgarsvæðið síðan 2017.“

Guðbrandur segir að þrátt fyrir þessar nýju reglur hafi tekið gildi ætli Svandís ekki að heimila rekstur einkarekinnar heilsugæslu á landsbyggðinni. „Þess í stað mun hún standa í vegi fyrir uppbyggingu einkarekinnar heilsugæslu hér á Suðurnesjum þrátt fyrir beiðni þar um,“ segir hann.

„Þarna gætir tvískinnungs. Ég hef vitneskju um að einkarekin heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu sinnir nú heilsugæslu út á landi vegna erfiðleika við að manna stöður og enginn segir neitt við því.“

„Hópur lækna en ekki einhverjir fjárfestar í bisness“

Guðbrandur spyr hvers vegna það sé verið að setja nýjar reglur ef það má síðan ekki fara eftir þeim. „Hvers vegna þarf að fara hægt í sakirnar á landsbyggðinni þegar fyrirkomulagið hefur verið fullreynt á höfðuðborgarsvæðinu og gefist vel þar?“ spyr hann einnig.

„Við hér á Íslandi höfum verið sammála um að hafna einkavæðingu grunnþjónustu en með því að heimila einkarekstur tiltekinnar þjónustu þýðir alls ekki að verið sé að einkavæða hana. Um einkareiknar heilsugæslustöðvar gilda nákvæmlega sömu reglur og opinberar. Verðskrá er ákveðin af ríki og óheimilt er að greiða út arð til eigenda sem þurfa að vera hópur lækna en ekki einhverjir fjárfestar í bisness.“

„Ég vil hins vegar líta á það sem skyldu mína“

Undir lok pistilsins segist Guðbrandur ekki sjá betur en að andstaðan við einkaregna heilsugæslu sé fyrst og fremst af pólitískum toga. „Byggð á þeirri hugmyndafræði að grunnþjónusta skuli fyrst og síðast vera á hendi opinberra aðila,“ segir hann.

„Einhverjir stjórnmálamenn virðast síðan telja það nýtast í sínum pólitíska framgangi að rugla fólk í ríminu með því að tala stöðugt um einkavæðingu þegar um er að ræða einkarekstur. Ég vil hins vegar líta á það sem skyldu mína að reyna að bæta þjónustu við íbúa burtséð frá því hvert rekstrarfyrirkomulagið er.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus