fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Íslandsbanki afhendir 35 milljónir króna í frumkvöðlastyrki

Eyjan
Föstudaginn 3. desember 2021 15:38

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslandsbanki afhenti í dag styrki úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka. Alls voru veittar 35 milljónir króna til tólf verkefna. Hver styrkur nemur á bilinu 1 – 4 milljónum króna en sjóðnum bárust tæplega 130 umsóknir um styrki.

Alls hafa verið veittar um 125 milljónir króna úr Frumkvöðlasjóðnum á síðastliðnum tveimur árum. Sjóðurinn er mikilvægur þáttur í samfélagsstefnu Íslandsbanka en markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar. Við úthlutun styrkja er horft til frumkvöðlaverkefna sem stuðla að þeim fjórum heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur ákveðið að starfa eftir. Þau eru Menntun fyrir alla, Jafnrétti kynjanna, Nýsköpun og uppbygging og Aðgerðir í loftslagsmálum.

Stjórn Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka var óbreytt á milli ára. Hana skipa Ari Kristinn Jónsson, fv. rektor Háskólans í Reykjavík og núverandi forstjóri AwareGO, Hrund Gunnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Festu, og Una Steinsdóttir, framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.

 

„Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka fær á hverju ári vel yfir 100 umsóknir um styrki, sem er til marks um þá miklu og mikilvægu grósku sem á sér stað í nýsköpunarumhverfinu hér á landi. Það er ánægjulegt að sjá að meginþorri þessara verkefna felur í sér leiðir til að bæta samfélagið  um land allt með margvíslegum hætti.  Þeir styrkir sem Frumkvöðlasjóðurinn veitir í ár endurspegla ekki aðeins áherslur Íslandsbanka og þau fjögur heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna sem Íslandsbanki hefur ákveðið að starfa eftir, heldur einnig þær fjölbreyttu lausnir og hugmyndir sem leynast víða í íslensku hugviti. Það er mikilvægt að geta lagt sitt af mörkum til að styðja við þær hugmyndir og vera þannig Hreyfiafl til góðra verka,“ er haft eftir Unu í fréttatilkynningu.

Þau verkefni sem hljóta styrki úr Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka í ár eru;

Esports Coaching Academy (ECA)

Esports Coaching Academy er hugbúnaðarlausn sem auðveldar aðilum að hefja skipulagt barnastarf í rafíþróttum með áherslu á líkamlegt og andlegt heilbrigði.

 

Bravo Earth

Markmið verkefnisins er að auðvelda fyrirtækjum að meta, bregðast við og stjórna loftlagstengdri áhættu og tækifærum í samræmi við leiðbeiningar TCFD. Hönnuð verður ný eining og verkferli í vefkerfið Bravo Earth sem inniheldur matsform fyrir áhættu- og tækifærisgreiningu og leiðbeiningar fyrir innleiðingu áferlum og skýrslugerð.

 

MAGNEA

MAGNEA – made in Reykjavík, er fatalína eftir Magneu Einarsdóttur sem samanstendur af yfirhöfnum úr íslenskri ull og var nýlega tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands. Sérstaða verkefnisins er sú að hugvit, hráefni og framleiðsla er öll uppruninn á höfuðborgarsvæðinu. Í framleiðsluferlinu er lögð áhersla á atriði sem stuðla að aukinni sjálfbærni í tískuiðnaði á borð við rekjanleika, gagnsæi og staðbundna framleiðslu.

 

Orb

Orb gerir hugbúnað sem notar tölvusjón í síma, fjargögn og gervigreind til að mæla skóga og kolefnisbindingu þeirra. Hugbúnaðurinn auðveldar skráningu nýskógræktarverkefna og reglubundnar úttektir. Þannig geta landeigendur tekið þátt í baráttunni við loftslagsvána og fyrirtæki keypt vottanlegar kolefniseiningar með 100% rekjanleika.

 

HEIMA

HEIMA er smáforrit sem sér um skipulag og hugræna byrði heimilisins fyrir fjölskyldur með heimsmarkmið 5.4 að leiðarljósi. Verkefnið felst í því að þróa spálíkan HEIMA sem býr til og heldur við verkefnayfirliti fyrir hverja fjölskyldu sem er sérsniðið að þörfum hennar. Spálíkanið gerir HEIMA að einstakri tæknilausn á heimsvísu.

 

Hreppamjólk

Hugmyndin byggist á því að gerilsneyða og selja ófitusprengda kúamjólk í lausu máli beint frá býli, á sjálfsafgreiðslustöð við kúabúið og í sjálfsafgreiðslustöðvum í stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu. Við hlið sjálfsalans verður sjálfsali með fjölnota glerflöskum, þetta er því umhverfisvænni aðferð en meðhöndlun á hefðbundinni mjólk.

 

Mannflóran

Hlaðvarpsþættirnir Mannflóran, í umsjón Chanel Bjarkar, verður vettvangur þar sem fólk getur sótt fræðslu um allskyns málefni tengd fjölmenningu og kynnst reynsluheimi fólks af erlendum uppruna jafnt og skoðunum hvítra innlendra Íslendinga á þessum málum.

 

Snerpa Power

Orkuskiptin auka vægi rafmagns sem eldsneytis í samfélaginu. Liður í að tryggja samkeppnishæfni raforkumarkaðar er að virkja raforkunotendur. Verkefnið snýr að þróun hugbúnaðar sem nýtir gagnastrauma til og frá raforkunotendum og gerir þeim kleift að lækka raforkukostnað. Áhrifin eru bætt nýting orkuauðlinda, aukið afhendingaröryggi rafmagns og aukin samkeppnishæfni íslensks raforkumarkaðar.

 

Plastplan

Verkefninu Framhaldslífi er ætlað að auka úrvinnslu á endurunnu plasti með áherslu á afurðasköpun og tilheyrandi verðmætasköpun og umhverfis ávinningi. Frá stofnun Plastplans ehf. hefur fyrirtækið lagt áherslu á endurvinnslu og hönnun í tengslum við endurunnið plast og mun Framhaldslíf gegna veigamiklu hlutverki í að auka afköst endurvinnslunnar og miðla möguleikum á nýtingu efnisins bæði innan-og utanlands.

 

Pure North Recycling

Verkefnið Bakki í Borð snýr að því breyta plastúrgangi í verðmæti. Stór hluti plasts endar í dag urðun eða út í umhverfinu með tilheyrandi mengun og sóun verðmæta. Markmið verkefnisins er að búa til og hanna nýja farvegi fyrir þetta plast og gefa því þar með framhaldslíf með öðrum tilgangi, hvort sem það sé girðingastaur, garðbekkur eða hellusteinn. Með þessu er verið að búa til hringrás innanlands fyrir hráefni, lágmarka sóun auðlinda og minnka losun gróðurhúsalofttegunda.

 

Fab Lab Ísafjörður

Fab Lab Ísafjörður ætlar að smíða plötupressu eftir open-source teikningum frá Precious Plastic. Pressan verður notuð til að framleiða plastplötur úr gömlum fiskinetum sem falla til á Ísafirði. Plöturnar geta gestir Fab Lab síðan notað til að smíða allt mögulegt.

 

Icelandic Hemp Textiles

Markmiðið með verkefninu er að hanna staðlað vinnsluferli við feygingu á hampi og þróa búnað til að vatnsfeygja hamp í því skyni að hámarka gæði trefjanna með sem minnstum kostnaði. Hamptrefjarnar eru svo notaðar í textílvinnslu. Iðnaðarhampur er gríðarlega umhverfisvæn planta sem hægt er gjörnýta og minnka umhverfisspor framtíðarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Í gær

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli