Nú stendur yfir umræða á Alþingi um rannsókn kjörbréfa en meirihluti kjörbréfanefndar hefur lagt til að öll kjörbréf sem gefin voru út í kjölfar Alþingiskosninganna verði staðfest og þar með að byggt verði á seinni talningu í Norðvesturkjördæmi. Aðrar sviðsmyndir sem lagðar eru til er að uppkosning verði framkvæmd í Norðvesturkjördæmi eða að kosið verði aftur á landinu öllu.
Það hefur vakið athygli að þeir þingmenn sem hlutu sæti sín við endurtalninguna geta tekið þátt í atkvæðagreiðslunni og þar með kosið um sín eigin þingsæti þrátt fyrir að lögreglurannsókn í kjördæminu hafi lokið með þeirri niðurstöðu að ekki væri hægt að fullyrða að ekki hafi verið átt við atkvæðisseðla þegar þeir lágu óinnsiglaðir á milli fyrri og seinni talningar.
Einhverjir hafa velt fyrir sér hvort þetta fyrirkomulag standist lög en í í 5. mgr. 5. gr. þingskapalaga segir:
„Við prófun kosninga og kjörgengis hefur sérhver þingmaður fullan þingmannsrétt. En fresti þingið úrskurði um kjörbréf þingmanns þá tekur hann engan þátt í störfum þingsins uns það mál er útkljáð og kosning hans og kjörgengi viðurkennt.“
Hins vegar má einnig túlka ákvæðið þannig að þingmenn hafi almennt heimild til að taka þátt í atkvæðagreiðslu um kjörbréf hafi úrskurði þingsins varðandi hans eigið kjörbréf ekki verið frestað með formlegum hætti. Slíkt hefur ekki verið gert þrátt fyrir þá annmarka sem hafa komið í ljós við rannsókn á talningunni í Norðvesturkjördæmi. Samkvæmt stjórnarskránni ákveður Alþingi sjálft hvort þingmenn þess séu löglega kosnir og stefnir allt í að sú ákvörðun verði tekin í dag.
Bent hefur verið á að þingið hafi sem stendur ekki útilokað að uppkosning fari fram í Norðvesturkjördæmi og því hljóti vafi að leika um þingsæti þeirra fimm þingmanna sem hlutu sæti sín við endurtalninguna og því óeðlilegt að þeir taki þátt í þingstörfum og atkvæðagreiðslu um eigið sæti á þingi.
Jón Magnússon, lögmaður, benti á það í Facebook-hópi Sjálfstæðismanna á Íslandi að það væri slæmt fyrirkomulag að þingmenn væru dómarar í sjálfs síns sök og hagsmunum. Hins vegar væri það svo að ef niðurstaða rannsóknar benti til þess að annmarkar á talningu og varðveislu kjörgagna í Norðvestur hafi ekki haft áhrif á heildarniðurstöðu kosninganna þá beri að staðfesta kjörbréfin. Annars þurfi að boða til uppkosningar. Engir aðrir möguleikar rúmist innan ramma þingskapalaga eða kosningalaga.
Birgir Ármannsson, formaður kjörbréfanefndar, sagði í gær allt benda til þess að nefndin skili af sér fjórum álitum. Eitt frá sex fulltrúum og svo þrjú álit hvert frá sínum fulltrúanum. Tillögurnar fela í sér að öll kjörbréf verði staðfest og kosning metin gild, að kjörbréf allra þingmanna nema þeirra úr norðvestur og jöfnunarmenn verði staðfest og uppkosning haldin í norðvestur, eða að uppkosning verði á landinu öllu.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, greindi frá því í samtali við mbl.is að hann hefði hug á að sitja hjá við atkvæðagreiðslu ef undirbúningskjörbréfanefnd legði til uppkosningu í norðvestur þar sem slíkt talning gæti haft áhrif á þingsætið hans, þó svo hann hafi ekki verið meðal þeirra uppbótarþingmanna sem misstu eða hlutu sæti við endurtalninguna.
Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar, greindi frá því í samtali við RÚV að hann ætli að greiða atkvæði með endurtalningunni en hann hlaut sæti sitt á þingi við endurtalninguna. Hann greindi þó svo frá því á Facebook í gær að hann muni sitja hjá. „Það verður að vera hafið yfir allan vafa að persónulegir hagsmunir mínir ráði því hvernig ég greiði atkvæði“
RÚV óskaði eftir svörum frá hinum fjórum þingmönnunum sem eiga sæti sitt undir því að endurtalningin standi en þeir vildu ekki gefa upp afstöðu sína.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, telur allar líkur á að kjörbréfamálið endi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, sama hver niðurstaða þingsins verður í dag. Undir þetta hafa margir tekið á samfélagsmiðlum, þá sérstaklega ef farin verður sú leið að staðfesta seinni talninguna. Slíkir annmarkar hafi komið í ljós varðandi aðdraganda og framkvæmd endurtalningarinnar að það sé ekki hafið yfir skynsamlegan vafa að átt hafi verið við atkvæði og því ólýðræðislegt að láta seinni talningu standa.
Hér eru ágætir menn, úr fimm flokkum.
En þeir eru ekki, og geta ekki orðið, réttmætir þingmenn. Ekki nema það komi til uppkosningar.
Ef kjör þeirra er samþykkt núna þá myndu atkvæði sem þeir greiða að vísu vera lögleg, en aldrei réttmæt í mínum huga, orð þeirra úr pontu ómerk. pic.twitter.com/oVBRqf4Zi6— gummih (@gummih) November 22, 2021
Það er furðulegt fyrirkomulag að þingmenn ákveði sjálfir hvort þeir séu löglega skipaðir. Engan veginn hægt að búast við hlutleysi af því hagsmunir þeirra sem eru komnir á þing af því að rugga ekki eigin báti eru of miklir. Eðlilegt að þetta fari til MDE.
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) November 23, 2021
Það er alveg absúrd að þingmenn kjósi yfir höfuð en það verður víst að fylgja lögum þó þau séu gölluð.
En 9 einstaklingar séu að fara að kjósa um hvort þau detti mögulega persónulega út af þingi er bonkers 🤷🏼♀️
— Nanna Hermannsdóttir 🇵🇸 (@nannahermanns) November 24, 2021
Aldrei skilið þessa áráttu stjórnvalda að þurfa fyrst að tapa máli fyrir MDE og svo gera það sem þarf. Taka frumkvæðið, bíta í súra eplið og kjósa aftur og laga það sem þarf. Þetta er enn og aftur tapað mál: https://t.co/694Q20yyDH
— Erlendur (@erlendur) November 23, 2021
Umræður um kjörbréf á @Althingi: 1. Löng yfirferð á endalausum þvælingi kjörbréfanefndar um Vesturland. 2. @andresingi bendir á augljósar ástæður til að almenningur geti efast um framkvæmdina. Sú eina ábending ætti að vera nóg. Allt annað er til að drepa málinu á dreif.
— Sóley Tómasdóttir (@soleytomasar) November 25, 2021
Fyrirsjáanlega atburðarás kjörtímabilsins:
Alþingi samþykkir að láta seinni talningu gilda.
Íslenska ríkinu verður stefnt fyrir MDE og tapar málinu. Stjórnvöld þráast við, áfrýja og tapa aftur.
Katrín segir málið óheppilegt og svo heldur pólitíkin áfram. https://t.co/MhAdfQ7w3U
— Björn Reynir (@bjornreynir) November 23, 2021
Menn sem hafa búið í sérhagsmunahelli allt sitt líf munu aldrei skilja tilganginn með því að gera eitthvað án þess að hagnast á því persónulega. Ákvörðun Alþingis er endanleg. Að skjóta málinu til MDE snýst um afhjúpa meingallað kerfi. pic.twitter.com/WCbOyd3ExV
— Guðmundur Gunnarsson (@gummigunnars) November 22, 2021
Viðbrögð 2 nýrra þingmanna Viðreisnar v/kosninga í NV hafa valdið vonbrigðum. En svona í alvörunni, hversu ógeðslega fáranlegt er að þingmenn skuli þurfa úrskurða um eigið kjör beisikklí?
Með lögum skal land byggja og allt það, lög voru brotin en við ætlum að láta það slæda!
— Matti Matt-ekki á Rás 2 eða söngvari. Hann/Him (@mattimatt) November 22, 2021