Brynjar Níelsson, lögfræðingur og fráfarandi þingmaður, segist gjarnan vera spurður að því hvort hann eigi sér engin önnur áhugamál en almenn leiðindi. Þeirri spurningu sé auðsvarað.
„Ég hef oft verið spurður að því hvort ég hafi engin önnur áhugamál en almenn leiðindi. Því er til að svara að ég hef eitt annað áhugamál, sem eru íslenskir áhrifavaldar. Má segja að þetta áhugamál sé að breytast í þráhyggju enda oft mjög áhugavert fólk sem telst til áhrifavalda. Ég tek eftir því að ég er ekki einn með þetta áhugamál. Íslenskir fjölmiðlar gefa okkur daglega góða innsýn í líf þeirra.“
Til að byrja með hafi áhrifavaldar verið fólk á borð við fræga tónlistarmenn og Instagram-áhrifavalda en nú sé tíðin önnur.
„Starf áhrifavaldsins hefur breyst mikið á skömmum tíma. Í upphafi voru þetta bara Bubbi og nokkrar fegurðardísir, sem birtu myndir af sér léttklæddum og fræddu okkur um tísku og skemmtanalífið. Nú eru þessir sömu áhrifavaldar orðnir aktivistar í loftslagsmálum, femínisma og útilokunarmenningu.“
Brynjar hefur tekið eftir því að nokkrir áhrifavaldar sem leggi stund á aktívisma hafi greint frá því að glíma við kvíða og kulnun og nú hafi þeir sent frá sér skýr skilaboð.
„Eins og í öðrum erfiðum störfum er farið að bera á kulnun og kvíða hjá áhrifavöldum. Og við sem höfum glímt við kulnun og kvíða fengum skýr skilaboð frá áhrifavöldum; Það er alveg óþarfi að mæta í vinnuna þegar við erum þreytt og leið. Hvernig væri líf okkar eiginlega ef við hefðum ekki þessa áhrifavalda?“
Vísar Brynjar þar í umræðuna sem nú á sér stað á samfélagsmiðlum – einkum Twitter – um að það sé í fínu lagi að nýta veikindadaga til að huga að sér andlega, svo sem vegna þreytu, streitu, álags eða depurðar.
Fjölmargir tala undir með Brynjari í athugasemdum og furða sig á viðhorfi ungu kynslóðarinnar. Enn tók sig þó til og benti á að líklega hafi Brynjar sjálfur sent þessi sömu skýru skilaboð. En fyrir ári síðan var greint frá því að Brynjar, þá þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefði ákveðið upp á sitt einsdæmi að hætta að mæta á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar en þá hafði hann ekki mætt á fundi nefndarinnar í rúman mánuð og óskað eftir lausn undan nefndarsetu sökum þess að hann taldi starf hennar vera „leikþættir og sýndarmennska“.
Í fyrra var jafnframt greint frá því að þegar Brynjar lagði fram tíu fyrirspurnir á þingi í maí á seinast ári hafi hann aðeins lagt fram eitt frumvarp og eina fyrirspurn á sjö ára þingferli sínum. Fyrirspurningar sem hann lagði fram þarna í maí vörðuðu kostnað hvers ráðuneytis fyrir sig við að svara fyrirspurnum þingmanns Pírata, Björns Levís Gunnarssonar. Brynjar hafði þá einnig verið uppnefndur „latasti þingmaðurinn“ en í samtali við Eyjuna hafði hann þetta að segja um viðurnefnið:
„Svo er það ekki merki um dugnað þingmanna að flytja vitleysis fyrirspurnir og frumvörp í gríð og erg um hluti sem engu máli skiptir. Þarna er nóg af einhvers konar jaðarfólki sem gerir lítið annað en að þyrla upp moldvirði í stað þess að vera í pólitík og hugmyndafræði og sannfæra fólk um hvar hagsmunir þeirra liggi. Má ég þá frekar biðja um óduglegt fólk.“
Sjá einnig: Brynjar vísar ásökunum um leti á bug – „Ég er í liði – Einkaflipp eru ekki vel séð“