Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir Andrés Magnússon, fulltrúa ritstjórnar Morgunblaðsins, fara með rangt mál í grein sinni í Morgunblaðinu í dag. Greinin ber fyrirsögnina „Stjórnarmyndun ákaflega erfið“ og er unnin úr könnun MMR á fylgi stjórnmálaflokka. Björn ræðir þetta í pistli á Vísi.
„Á hinn bóginn væri svo auðvitað hægt að reyna að mynda ríkisstjórn án Sjálfstæðisflokksins, en hún þyrfti þá að vera fimm flokka hið minnsta, en þar yrðu Píratar á meðal, sem óvíst er að myndu þola stjórnarsamstarf vel. Eða aðrir flokkar samstarfið við þá,“ skrifar Andrés í grein sinni en Björn er ekki sáttur með þessi orð.
„Í fyrsta lagi er það rangt, eins og ritstjóri Kjarnans bendir á – fjögurra flokka stjórn út frá þessari skoðanakönnun er möguleg án Sjálfstæðisflokksins,“ segir Björn og ræðir síðan fullyrðingu Andrésar um að Píratar myndu ekki þola stjórnarsamstarf vel.
Hann segir að samstarf Pírata og borgarstjórnar hafi gengið mjög vel og að það eitt og sér ætti að afsanna þessa fullyrðingu.
„Í öðru lagi er hægt að útskýra þetta sjónarmið með orðum annars ritstjóra Stundarinnar – þar sem það er ágætlega útskýrt hvers vegna sumir aðrir flokkar (það kæmi kannski fólki á óvart hvaða flokkar það eru) þola ekki Pírata. Það sem skiptir máli þar eru auðvitað ástæðurnar fyrir pirringnum og farið er yfir góðan hluta þeirra í grein Stundarinnar,“ segir Björn.
Hann segir að Píratar séu með einfalda kröfu um að bæta stjórnmálin og auka lýðræðið. Hann aðra flokka ekki vilja Pírata þar sem þeir vilji alla jafna ráða öllu eftir eigin geðþótta.
„Ég tek því undir með Andrési Magnússyni, ekki um að það verði ákaflega erfitt að mynda stjórn – heldur að það verði ákaflega erfitt að mynda stjórn án Pírata. Því eina leiðin til þess að draga stjórnmálin inn í nútímann, með þátttökulýðræði, gagnsæi og stjórnmálum án sérhagsmunatengingar – er að kjósa Pírata. Stór hópur Pírata á Alþingi er lykillinn að því að draga hina flokkana úr klassískri skotgrafarpólitík þar sem góðum málum er fórnað í pólitískum hanaslag,“ segir Björn.
Hann gerir sér fulla grein fyrir því að sumir flokkar hafa „engan áhuga á að gera betur“.
„Þeir munu æmta og skræmta á hæl og hnakka. Verði þeim bara að góðu með það bara. Ég vil gera hlutina öðruvísi og ég veit að það er erfitt. Á sama tíma er það líka nauðsynlegt því sömu flokkarnir við stjórnvölinn – aftur og aftur – eru ekki að fara að gera neitt nýtt,“ segir hann að lokum.