Fyrstu tölur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi eru komnar. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, er með flest atkvæði, Teitur Björn Einarsson, lögmaður og varaþingmaður með næstflest og bóndinn og alþingismaðurinn Haraldur Benediktsson í þriðja sæti.
Af fyrstu tölum að dæma virðist Þórdís vera nokkuð örugg á toppnum með rétt tæp 70% atkvæða. En vendingar gætu átt sér stað á milli Teits og Haraldar, en einungis munar 43 atkvæðum á þeim.
Talin atkvæði eru 798 talsins.
Í prófkjörsbaráttunni vakti athygli að Haraldur sagðist ekki sætta sig við annað sætið og því má lita svo á að honum hafi verið hafnað, fari líkt og stefnir í.