fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Stefán Óli genginn til liðs við Pírata

Erla Hlynsdóttir
Miðvikudaginn 2. september 2020 11:08

Stefán Óli Jónsson. Mynd/aðsend

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Óli Jónsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður þingflokks Pírata. Hann var valinn úr hópi rúmlega 200 umsækjenda, hóf störf 1. september og mun aðstoða þingflokkinn fram að Alþingiskosningum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá þingflokknum.

Stefán kemur til Pírata frá fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar þar sem hann hóf störf í upphafi árs 2014. Á árum sínum hjá fréttastofunni miðlaði Stefán fréttum þvert á miðla; í sjónvarpi, útvarpi og á vef, auk þess að hafa komið að framleiðslu annars fréttatengds efnis.

Að loknu stúdentsprófi úr Verzlunarskóla Íslands lauk Stefán BA-gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands og meistaragráðu í nýsköpun og viðskiptaþróun frá sama skóla.

Hjá Pírötum mun Stefán meðal annars annast samskipti við fjölmiðla og aðstoða þingmenn flokksins í störfum sínum. Fyrir eru starfsmenn þingflokksins þeir Eiríkur Rafn Rafnsson og Baldur Karl Magnússon.

Halldóra Mogensen, þingflokksformaður Pírata, segir í tilkynningu að Stefán sé kærkomin viðbót við þingflokkinn. „Þekking og reynsla Stefáns mun koma að góðum notum við að koma okkar helstu áherslumálum á framfæri í baráttu okkar fyrir gagnsæi, ábyrgð, borgararéttindum og aukinni aðkomu almennings að ákvörðunartöku. Fram undan er krefjandi þingvetur þar sem aðhald mun skipta sköpum enda hafa stjórnvöld sýnt að þau eiga í erfiðleikum með að fóta sig í yfirstandandi þrengingum. Stefán verður öflugur liðsstyrkur í þeirri vinnu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt