fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Bæjarfulltrúi segir fulla ástæðu til að rasskella aðra fulltrúa – „Svona hefur þetta verið um langt árabil“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 16. september 2020 16:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Af hverju ætli það sé að verða náttúrulögmál að opinberar fjárfestingar fara fram úr kostnaðaráætlunum?“

Að þesssu spyr Theódóra Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi í Kópavogi, í pistli sínum á Vísi í dag. „Ítrekað rata fjárfestingar sveitarfélaga í fréttir fyrir stórkostlega framúrkeyrslu, vanáætlanir og kærumál vegna útboða. Tugir og hundruðir milljóna eru greiddar úr sameiginlegum sjóðum bæjarbúa og verkefni tefjast um mánuði og ár,“ segir hún.

„Nýverið stóðu bæjarfulltrúar í Kópavogi frammi fyrir því að taka ákvörðun um enn eina umframfjárveitinguna til Sorpu. Í þetta skiptið upp á 80 milljónir. Á sama tíma er framkvæmd viðkvæmra velferðarmála frestað sökum skorts á fjármagni og fjárveitingum. Og þetta er ekki eina dæmið. Fyrir tveimur árum var bent á að 9 af hverjum 10 verkefnum hins opinbera fara fram úr kostnaðaráætlunum. Margar þeirra margfaldast.“

„Við erum ekki byrjuð að byggja hann“

Theódóra segir ýmis áhugaverð mál, tengd opinberum fjárfestingum, hafa verið á dagskrá síðasta bæjarstjórnarfundar í Kópavogi. „Eitt þeirra var erindi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu sem benti á ýmsa alvarlega annmarka við umgjörð byggðasamlaganna sem sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa komið sér upp,“ segir hún og nefnir nokkra vankanta sem dæmi. „Óskýrt umboð stjórnar byggðasamlaganna, veikt ályktunarhæfi, skort á endurskoðun samninga og fleira. Ekkert af þessum athugasemdum ráðuneytisins kom á óvart enda hef ég gagnrýnt þessi atriði sem valda því að enginn virðist bera ábyrgð á neinu af því sem úrskeiðis fer. Það bendir hver á annan.“

Þá nefnir Theódóra aðrar framúrkeyrslur eins og hjá Sorpu og Strætó. „Ef bara þessari upptalningu lyki hér. Á dagskrá fundarins var kynnt niðurstaða kærunefndar útboðsmála varðandi brú yfir Fossvog. Niðurstaðan er á þá leið að Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Kópavogsbær eru skaðabótaskyld gagnvart kærendum og hefja þarf verkið að nýju,“ segir Theódóra og bætir við að hún vildi að hún gæti látið staðar numið með þessum dæmum. „Svo er þó ekki. Á dagskrá fundarins var erindi um uppgjör vegna hönnunarútboðs á nýjum Kársnesskóla. Þar liggur fyrir að bæjarstjórn samþykkti tilboð upp á 99 milljónir. Nú liggur krafa upp á 300 milljónir á borðinu fyrir hönnun skólans. Við erum ekki byrjuð að byggja hann.“

„Segist hafa gleymt veskinu“

Theódóra segir að því miður séu óskýr stjórnsýsla og framúrkeyrslur ekki nýjar fréttir. „Svona hefur þetta verið um langt árabil og engin teikn á lofti um að neitt sé að breytast,“ segir hún og tekur síðan fram að það sé full ástæða til þess að skamma og rasskella aðra fulltrúa fyrir þetta. „Það er eflaust ekki vænlegt til árangurs að rassskella einn og einn kjörinn fulltrúa fyrir einstaka mál, skamma meirihlutann fyrir að taka óupplýstar ákvarðanir eða fyrir vond vinnubrögð þó full ástæða sé til,“ segir hún.

Þá segir Theódóra að málið sé of alvarlegt til þess. „Það þarf að búa til stjórnsýslulegt umhverfi sem tekur á vandanum. Það kostar sáralítið í samanburði við framúrkeyrslurnar, skaðabæturnar og tafirnar. Nú er skýrt ákall uppi um að opinberir aðilar fari í auknar fjárfestingar vegna aðstæðna í samfélaginu. Sjálf hef ég setið hjá í öllum innkaupamálum á þessu kjörtímabili þegar augljóslega er verið að taka óupplýstar ákvarðanir. Ég hef ítrekað bent á að innkaupaferlar eru óskýrir og bæta þarf þekkingu á útboðsmálum hjá Kópavogsbæ eins og staðfest hefur verið í nýrri skýrslu um úttekt á innkaupum hjá sveitarfélaginu,“ segir hún.

„Áhættugreining er kjarninn í undirbúningi opinberra fjárfestinga ásamt því að auka þekkingu á málaflokknum í heild sinni. Við verðum að undirbúa okkur betur til að eiga fund með spaðanum sem býður í kvöldmat, fær sér stærstu steikina og dýrasta vínið en klappar svo á brjóstið á sér þegar kemur að því að borga reikninginn og segist hafa gleymt veskinu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega