Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sendi í dag samúðarkveðju sína og íslensku þjóðarinnar til Michel Aoun, forseta Líbanons, eftir mannskæða sprengingu í höfuðborg landsins, Beirút.
Forseti sagði þar að hugur landsmanna væri með þeim sem sakna ástvina og hafa misst heimili vegna hörmunganna og minnti á að íslensk stjórnvöld væru reiðubúin að útvega aðstoð við björgunaraðgerðir.