fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Unnur Brá yfir stýrihópi um skipulag framkvæmda við Landspítala

Erla Hlynsdóttir
Föstudaginn 28. ágúst 2020 15:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, hefur skipað stýrihóp til að annast umsjón og samþættingu allra þátta skipulags við framkvæmdir vegna uppbyggingar Landspítala við Hringbraut. Formaður hópsins er Unnur Brá Konráðsdóttir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.

Skipun hópsins er í samræmi við tillögu heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar 24. maí síðastliðnum. Hann á að hafa yfirsýn yfir öll verkefni uppbyggingar Landspítala, staðfesta áætlanir og tryggja að verkefnið lúti áherslum stjórnvalda varðandi hlutverk Landspítala, áætlunum um verkefni og rekstur hans og jafnframt að verkefnið byggi á stefnu stjórnvalda í heilbrigðismálum. Stýrihópurinn mun bera ábyrgð gagnvart heilbrigðisráðuneytinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Í því felst meðal annars að móta stefnu, annast yfirstjórn og samhæfingu allra þátta verkefnisins og enn fremur að veita ráðgjöf um þróun á hlutverki Landspítala, rekstrarforsendur og umbætur í nýju starfsumhverfi.

Stýrihópurinn er svo skipaður:

  • Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður
  • Ásta Valdimarsdóttir, heilbrigðisráðuneytinu
  • Guðmundur Árnason, fjármála- og efnahagsráðuneytinu
  • Páll Matthíasson, Landspítala
  • Gunnar Guðni Tómasson, Landsvirkjun

Nánar er fjallað um verkefnið og hlutverk stýrihópsins í erindisbréfi sem má lesa hér:

Erindisbréf stýrihópsins

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins