fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Formenn stjórnmálaflokkanna funda um tímasetningu næstu þingkosninga

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 3. júlí 2020 08:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ætlar á næstunni að boða formenn stjórnmálaflokkanna á fund til að ræða tímasetningu næstu þingkosninga. Forystumenn ríkisstjórnarinnar vilja klára fullt kjörtímabil og kjósa í lok október 2021 en stjórnarandstaðan vill láta kjósa næsta vor.

Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.

„Yfirstandandi kjörtímabili lýkur 28. október 2021 og það hefur engin ákvörðun verið tekin um að boða til kosninga fyrr.“

Hefur blaðið eftir forsætisráðherra sem útilokar þó ekki að boðað verði til kosninga aðeins fyrr.

Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, hefur sagt að hans skoðun sé að það eigi að klára fullt kjörtímabil og kjósa að hausti en formenn flestra stjórnarandstöðuflokkanna vilja kjósa í vor og vísa bæði til hefða og að ný ríkisstjórn þurfi að hafa nægan tíma til að undirbúa fjármálastefnu og fjárlög.

„Ég mun boða formenn allra flokka til fundar á næstunni til að fara yfir þessi sjónarmið, áður en við tökum ákvörðun.“

Er haft eftir forsætisráðherra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus