fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Lilja í sóttkví í tvær vikur – Óvissa með aðra ráðherra

Trausti Salvar Kristjánsson
Þriðjudaginn 30. júní 2020 08:40

Lilja Alfreðsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lilja Alfreðsdóttir, mennta – og menningarmálaráðherra, verður í sóttkví næstu tvær vikur eftir að hún greindist neikvæð í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Hún greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi:

„Kæru vinir. Vegna COVID-19 smits í nærumhverfi mínu ákvað ég að fara í skimun hjá Íslenskri erfðagreiningu. Ég fékk neikvæðar niðurstöður úr skimuninni í kvöld. Ég verð í sóttkví næstu tvær vikur. Þessi staða er mikilvæg hvatning til okkar allra að gæta áfram sóttvarna. Öll viljum við halda áfram að njóta frelsisins sem fallega íslenska sumarið hefur upp á að bjóða.“

Fréttablaðið segist hafa heimildir fyrir því að eiginmaður Lilju, Magnús Óskar Hafsteinsson, hagfræðingur í fjármálaráðuneytinu, sé smitaður af Covid-19 sjúkdómnum.

Lilja var í þinginu í gær og því er viðbúið að fleiri ráðherrar, þingmenn og starfsfólk Alþingis þurfi að fara í sóttkví einnig.

Morgunblaðið hefur eftir Róberti Marshall, upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, að ekki séu fleiri ráðherrar í sóttkví, sem hann viti af.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus