Engin brúarlán eða stuðningslán hafa verið veitt fyrirtækjum ennþá, en úrræðin áttu að hjálpa fyrirtækjum vegna covidkreppunnar.
RÚV greinir frá.
Þann 21. mars kynnti ríkisstjórnin svokölluð brúarlán, þar sem bankar gátu veitt 70% ríkisábyrgð, að hámarki 1,2 milljörðum króna. Ekkert fyrirtæki hefur þó enn fengið slíkt lán.
Þá voru stuðningslán kynnt 21. apríl, ætluð minni fyrirtækjum og voru með 100% ríkisábyrgð. Ekki hefur verið opnað fyrir umsóknir þeirra lána ennþá á Ísland.is.
Að sögn Seðlabanka Íslands á eftir að ganga frá lánveitingunni milli fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Seðlabankans og annrra lánastofnana.
Að sögn RÚV vonast viðskiptabankarnir til að brúarlánin komi til framkvæmda innan skamms.