Alls 31 þúsund umsóknir höfðu borist um atvinnuleysisbætur samhliða hlutabótum hjá VMST og alls 50 þúsund manns eru á skrá hjá stofnuninni, bæði um minnkað starfshlutfall og almennar umsóknir. Mikið álag er á starfsfólki Vinnumálastofnunar, en þó hefur hægt nokkuð á umsóknum um bætur, miðað við mars mánuð.Talið er að atvinnuleysi hafi mælst um 9% í mars, en spár gera ráð fyrir allt að 16% atvinnuleysi í apríl.
Dreifing umsækjenda milli landshluta er að mestu í samræmi við dreifingu starfandi fólks í landinu. Fjöldi umsækjenda er þó hlutfallslega hærri á Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni. Þannig hafa 11% umsókna borist frá íbúum Suðurnesja, þar sem 8% starfandi landsmanna bjuggu á síðasta ári og 67% umsókna af höfuðborgarsvæðinu, þar sem 64% starfandi landsmanna bjuggu.
Kynjaskipting umsækjenda er nokkuð jöfn. 55% umsækjenda eru karlmenn en 45% konur. Til samanburðar voru karlar 53% starfandi landsmanna í fyrra en konur 47%, samkvæmt tölum frá Hagstofu.
Ríflega þrír af hverjum fjórum umsækjendum eru íslenskir ríkisborgarar, en um 14% eru Pólverjar og 10% borgarar annarra ríkja. Í fyrra voru um 80% starfandi fólks hérlendis Íslendingar en 20% útlendingar. Endurspegla umsóknir um hlutabætur því betur samsetningu vinnumarkaðarins en umsóknir um atvinnuleysisbætur síðasta árið, þar sem hlutfall Íslendinga meðal umsækjenda hefur verið 63%.