fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Efling hafnar undangjöf og krefst hækkunar atvinnuleysisbóta

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 7. apríl 2020 10:39

Sólveig Anna Jónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hækkun atvinnuleysisbóta, hækkað hlutfall tekjutengingar og rýmkun skilmála er meðal þeirra aðgerða sem Efling stéttarfélag vill að stjórnvöld grípi til áður en rætt sé um frestanir á launahækkunum og lífeyrisleiðina svokölluðu, sem ASÍ hefur hafnað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn Eflingar í dag:

Umsamin launahækkun í aprílmánuði samkvæmt kjarasamningum félagsins verður ekki aftur tekin. Að baki henni liggur löng og erfið barátta, m.a. verkfallsaðgerðir, sem félagið mun aldrei ógilda. Stjórn lýsir yfir stuðningi við þá afstöðu sem formaður Eflingar hefur lýst á vettvangi Alþýðusambandsins þar að lútandi. Því er jafnframt hafnað að aðrar skerðingar á kjörum Eflingarfélaga, til dæmis á lífeyrisréttindum, komi á móti kjarasamningsbundnum launahækkunum.“

Stjórn Eflingar skorar á stjórnvöld að skoða heldur rýmkun hlutabótarleiðarinnar og tímabundna lækkun tryggingagjalds, sem og hækkun atvinnuleysisbóta:

„Stjórn Eflingar kallar eftir hækkun á atvinnuleysisbótum og rýmkun skilmála, sér í lagi að grunnatvinnuleysisbætur verði hækkaðar, hlutfall tekjutengingar hækkað, tímabil á tekjutengdum bótum lengt og tveggja vikna biðtími á grunnatvinnuleysisbótum áður en tekjutengdar bætur taka við afnuminn.

Tilkynningin í heild sinni:

Vinnandi fólk á Íslandi, þar með taldir félagsmenn Eflingar, hafa þurft að taka á sig miklar byrðar vegna Covid-19 faraldursins. Þær byrðar taka á sig ýmsar myndir.

Félagsmenn Eflingar eiga sjaldnast val um að vinna heima eða í sveigjanlegum vinnutíma líkt og margt launafólk á íslenskum vinnumarkaði. Félagsmenn Eflingar þurfa nær undantekningarlaust að mæta á vinnustað á tilsettum tíma og vera þar í framlínu.

 Félagsmenn hafa misst vinnuna. Félagsmenn búa við skert atvinnuöryggi, óvissu og áhyggjur af framtíðinni. Félagsmenn hafa mátt sæta ólögmætum kjaraskerðingum af hálfu atvinnurekenda. Félagsmenn hafa þurft að starfa við nýjar og krefjandi aðstæður í vinnu þar sem heilsa þeirra og öryggi er lagt að veði. Félagsmenn með börn eru í vanda vegna skertrar opnunar í skólum.

 Engu að síður eru félagsmenn Eflingar oft þeir sem sinna störfum sem þjóðfélagið getur ekki verið án. Félagsmenn Eflingar standa vörð um grunnstoðir samfélagsins í fjölbreyttum störfum allt frá umönnun viðkvæmra einstaklinga yfir í matvælaframleiðslu og vöruflutninga. Faraldurinn sýnir hversu mikilvæg en um leið vanmetin störf þeirra eru.

 Stjórn Eflingar áréttar eftirfarandi:

–          Umsamin launahækkun í aprílmánuði samkvæmt kjarasamningum félagsins verður ekki aftur tekin. Að baki henni liggur löng og erfið barátta, m.a. verkfallsaðgerðir, sem félagið mun aldrei ógilda. Stjórn lýsir yfir stuðningi við þá afstöðu sem formaður Eflingar hefur lýst á vettvangi Alþýðusambandsins þar að lútandi. Því er jafnframt hafnað að aðrar skerðingar á kjörum Eflingarfélaga, til dæmis á lífeyrisréttindum, komi á móti kjarasamningsbundnum launahækkunum.

–          Stjórn Eflingar skorar á hið opinbera að standa við fyrirheit um að nýta öll tæki og svigrúm til frekari stuðnings við vinnumarkaðinn eftir því sem nauðsyn krefur. Þar má skoða rýmkun hlutabótaleiðarinnar og tímabundna lækkun tryggingagjalds. Efling minnir á að stuðningi stjórnvalda við fyrirtæki fylgi eðlilegir og sanngjarnir skilmálar sem tryggi að fjármagn úr sameiginlegum sjóðum skili sér þangað sem þess er raunverulega þörf en ekki til fyrirtækja með góða eiginfjárstöðu og sögu um himinháar arðgreiðslur.

–          Stjórn Eflingar minnir á stöðu einstakra hópa sem orðið hafa útundan í aðgerðum stjórnvalda. Fólk eldra en 70 ára á vinnumarkaði á að hafa aðgang að hlutabótaleiðinni. Aðlaga þarf hlutabótaleiðina þannig að hún nýtist þeim sem eru í 45% starfshlutfalli eða minna. Foreldrar sem neyðast til að missa úr vinnu vegna skertrar opnunar skóla eiga að fá rétt á bótum líkt og í Noregi.

–          Stjórn Eflingar kallar eftir hækkun á atvinnuleysisbótum og rýmkun skilmála, sér í lagi að grunnatvinnuleysisbætur verði hækkaðar, hlutfall tekjutengingar hækkað, tímabil á tekjutengdum bótum lengt og tveggja vikna biðtími á grunnatvinnuleysisbótum áður en tekjutengdar bætur taka við afnuminn.

–          Kjaramálasvið Eflingar hefur móttekið staðfestar upplýsingar um misnotkun fyrirtækja á hlutabótaleiðinni. Stjórn Eflingar fordæmir slíka misnotkun og kallar eftir hertum aðgerðum stjórnvalda gegn þeim.

–          Stjórn Eflingar varar við að reynt verði að koma óvinsælum málum í gegn í skjóli nætur meðan athygli beinst að Covid-19 faraldrinum. Stjórn Eflingar áréttar í því samhengi afstöðu félagsins til veggjalda og leggur áherslu á að vinnandi fólk haldi vöku sinni gagnvart tillögum úr ranni sérhagsmunaafla.

Stjórn Eflingar hvetur til samstöðu meðal vinnandi fólks og innan heildarsamtaka þeirra nú sem aldrei fyrr.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus