fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Ásmundur segir Vinnumálastofnun að horfa framhjá lagabókstafnum – Sjötugir og eldri mega sækja um bætur

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 7. apríl 2020 13:37

Ásmundur Einar Daðason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur beint þeim tilmælum til Vinnumálastofnunar að hún víki frá aldursskilyrðum þegar sótt er um atvinnuleysibætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins:

„Markmiðið með frumvarpinu um rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta samhliða minnkuðu starfshlutfalli er einfalt, að stuðla að því að vinnuveitendur haldi ráðningarsamband við starfsmenn sína eins og frekast er unnt. Það eru mikil verðmæti fólgin í því fyrir allt samfélagið að sem flestir haldi virku ráðningarsambandi við vinnuveitanda á meðan faraldurinn gengur yfir. Því hef ég beint þeim tilmælum til Vinnumálastofnunar að hún víki frá aldursskilyrðum þegar sótt er um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli,“

segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.

Lögin skýr

Í lögum um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um þau skilyrði að launamaður sé orðinn 18 ára og yngri en 70 ára til þess að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Þátttakendur á vinnumarkaði sem orðnir eru 70 ára eða eldri hafa ekki getað nýtt sér úrræði stjórnvalda um hlutabætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli þar sem þeir uppfylli ekki framangreint skilyrði laganna.

Úrræðinu um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli er ætlað að aðstoða fyrirtæki tímabundið við að halda ráðningarsambandi við starfsfólk sitt vegna þess óvissuástands sem ríkir á vinnumarkaði í tengslum við COVID-19 faraldurinn. Því þykir ekki ástæða til að gera greinarmun eftir aldri á þeim þátttakendum á vinnumarkaði sem úrræðið getur nýst.

Í lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um Ábyrgðasjóð launa (minnkað starfshlutfall) er kveðið á um að heimilt sé að greiða bætur samkvæmt ákvæðinu þótt launamaður teljist ekki tryggður í skilningi laganna enda séu skilyrði ákvæðisins uppfyllt. Jafnframt er kveðið á um að önnur ákvæði laganna gildi um greiðslu bóta samkvæmt ákvæðinu eftir því sem við geti átt.

Þá beinir ráðherra einnig þeim tilmælum til Vinnumálastofnunar að stofnunin kynni breytta stjórnsýsluframkvæmd með fullnægjandi hætti og beini því jafnframt til umsækjenda sem vegna aldurs kunna að hafa fengið synjun um atvinnuleysisbætur samhliða minnkuðu starfshlutfalli að sækja um slíkar bætur að nýju.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun