fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Samfylkingin tapar fylgi en Miðflokkur, VG og Sósíalistaflokkurinn í sókn

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 3. mars 2020 14:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Helstu breytingar á fylgi flokka frá síðustu mælingu eru að Miðflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Vinstri græn auka fylgi sitt en Samfylkingin tapar fylgi, samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup.

Fylgi Samfylkingarinnar minnkar um þrjú prósentustig milli mælinga eftir mikla fylgisaukningu í janúar, en næstum 15% þeirra sem taka afstöðu segjast myndu kjósa flokkinn færu kosningar til Alþingis fram í dag.

Fylgi Miðflokksins eykst um nær tvö prósentustig en rúmlega 14% segjast myndu kjósa flokkinn nú.

Fylgi Sósíalistaflokksins eykst um tæplega tvö prósentustig, en 5% segjast myndu kjósa flokkinn, og fylgi Vinstri grænna eykst um rösklega eitt prósentustig en nær 12% segjast myndu kjósa flokkinn nú.

Fylgi annarra flokka breytist lítið milli mánaða, eða um 0,0-0,8 prósentustig.

  • Sjálfstæðisflokkur – 22%
  • Samfylking – 12,8%
  • Miðflokkur – 12,2%
  • Vinstri græn – 11,9%
  • Píratar – 10.7%
  • Viðreisn – 10.3%
  • Framsókn – 7%
  • Sósíalistaflokkur – 5%
  • Flokkur fólksins – 4%

Sjálfstæðisflokkur+Framsókn+VG= 40.8%

Stuðningur við ríkisstjórnina eykst um nær tvö prósentustig milli mælinga og segjast rúmlega 48% þeirra sem taka afstöðu styðja hana.

Spurt var: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa? En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu? Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna? Styður þú ríkisstjórnina?

Niðurstöður sem hér birtast um fylgi flokkanna á landsvísu eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 3. febrúar til 1. mars 2020. Heildarúrtaksstærð var 7.964 og þátttökuhlutfall var 53,8%. Vikmörk á fylgi við flokka eru 0,1-1,4%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum

Fyrrverandi forstjóri Reita: Hús eru byggð of þétt og of mikill hraði í byggingarframkvæmdum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Skipta út bankaráði Landsbankans í heild sinni eftir TM-hneykslið

Skipta út bankaráði Landsbankans í heild sinni eftir TM-hneykslið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ásakanir um lýðskrum og óráðsíu gengu á víxl á fundi borgarstjórnar og spurt hvort enginn viti hversu margir milljarðar eru farnir

Ásakanir um lýðskrum og óráðsíu gengu á víxl á fundi borgarstjórnar og spurt hvort enginn viti hversu margir milljarðar eru farnir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Bjarkey ráðherra í fyrsta skipti

Bjarkey ráðherra í fyrsta skipti