Átakshópur sem fjallað hefur um lausnir á þeim vanda sem birtist á bráðamóttöku Landspítalans hefur lagt fram skýrslu með 11 tillögum um aðgerðir sem forgangsraðað er eftir mikilvægi. Voru þær kynntar á blaðamannafundi í gær.
Fram kom hjá Páli Matthíassyni, forstjóra Landspítalans, að fyrsta tillaga átakshópsins hefði verið rædd og samþykkt formlega á fundi hans með framkvæmdastjórn spítalans í morgun. Í henni felst að tekin hefur verið stefnumarkandi ákvörðun af hálfu Landspítala um að sjúklingar á bráðamóttöku sem þurfa innlögn, flytjist á viðeigandi legudeildir sem fyrst. Til að fylgja þessari ákvörðun eftir mun Landspítali gera verk- og tímaáætlun, þ.m.t. áhættumat.
Gera skal ráð fyrir að sjúklingar bíð ekki innlagnar lengur en í tiltekinn tíma, að hámarki 6 klukkustundir frá komu og að útfærslan feli í sér fyrst um sinn tiltekinn hámarksfjölda sjúklinga sem bíða eftir innlögn.
Tillögur átakshópsins eru eftirfarandi, raðað í forgangsröð:
- Forstjóri og framkvæmdastjórn Landspítala taki þegar í stað stefnumarkandi ákvörðun um að sjúklingar á bráðamóttöku spítalans sem þurfa innlögn flytjist á viðeigandi legudeildir sem fyrst. Ákvörðunin verði sett í forgang á Landspítala þannig að viðeigandi legudeildir spítalans vinni að því að koma henni í framkvæmd.
- Forstjóri og framkvæmdastjórn Landspítala taki ákvörðun um að gerð verði verk- og tímaáætlun, þ.m.t. áhættumat, vegna hinnar stefnumarkandi ákvörðunar. Gera skal ráð fyrir að sjúklingar bíði ekki innlagnar lengur en í tiltekinn tíma, að hámarki 6 klukkustundir frá komu, og að útfærslan feli í sér fyrst um sinn tiltekinn hámarksfjölda sjúklinga sem bíða eftir innlögn. Verk- og tímaáætlunin verði tilbúin fyrir 1. apríl 2020.
- Forstjóri og framkvæmdastjórn taki ákvörðun um að gerð verði verk- og tímaáætlun til langs tíma sem hafi það markmið að vandinn skapist ekki aftur á bráðamóttöku Landspítala. Verk- og tímaáætlunin verði tilbúin fyrir 15. apríl 2020.
- Landspítali stofni þróunarteymi um það hvernig þjónustu við aldraða sé best fyrir komið í framtíðinni og útbúi jafnframt verk- og tímaáætlun vegna samvinnu við veitendur heilbrigðisþjónustu utan Landspítala. Í verk- og tímaáætluninni komi fram hvernig unnt sé að þróa þjónustu við aldraða sem eru með fjölþættan heilsuvanda. Hér er um mjög mikilvægt langtímaverkefni að ræða. 5. Heilbrigðisþjónusta heim – sérhæfð heimaþjónusta við veika aldraða verði tekin upp þegar í stað. Þjónustan komi til framkvæmda 1. júní 2020.
- Hafist verði handa við endurskipulagningu á færni- og heilsumati þegar í stað. Hinn 1. september 2020 verði byrjað að nota mælitækið RAI Home Care og 1. desember 2020 verði byrjað að nota mælitækið InterRAI-Contact Assessment.
- Auka ber líknarþjónustu við aldraða. Komi til framkvæmda eigi síðar en 1. september 2020.
- Heilbrigðisþjónusta heim – kannað verði hvort þörf sé á auknum læknisfræðilegum stuðningi Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við heimahjúkrun í Reykjavík. Verði gert sem fyrst.
- Auka möguleika sjúkraflutningamanna til að meðhöndla sjúklinga í heimahúsum. Fari í samningsmarkmið heilbrigðisráðuneytisins fyrir samning Sjúkratrygginga Íslands um sjúkraflutninga fyrir 1. júlí 2020. 10. Styrkja vegvísun í heilbrigðiskerfinu – tilvísana- og ráðgjafamiðstöð Landspítala stofnuð. Komi til framkvæmda 1. september 2020. 11. Styrkja vegvísun í heilbrigðiskerfinu – Heilsuvera sjái um netspjall og símsvörun í símanúmerinu 1700. Komi til framkvæmda 1. september 2020.